Hommar hafa lægri tekjur en gagnkynhneigðir þrátt fyrir meiri menntun

Samkvæmt nýrri rannsókn BHM, Samtak­anna 78 og Hagfræði­stofnunar telur meirihluti hinsegin fólks halla á kjör og réttindi þess á vinnu­markaði. Hommar eru tekju­lægri en gagn­kynhneigðir karlar en lesbíur eru tekju­hærri en gagn­kynhneigðar konur.

Hommar hafa að jafnaði þriðjungi lægri tekjur en gagn­kynhneigðir karlmenn þrátt fyrir að vera almennt menntaðri og atvinnu­öryggi trans fólks er minna en hjá öðru hinsegin fólki. Þá finnst meirihluti hinsegin fólks halla á kjör og réttindi þess á vinnu­markaði. Þetta er meðal niður­staðna úr greiningu BHM á hinsegin vinnu­markaði á Íslandi sem unnin var í samstarfi við Samtökin 78 og og Hagfræði­stofnun Háskóla Íslands.

Árið 2019 voru atvinnu­tekjur homma á ársgrundvelli um 6 milljónir króna eða þriðjungi lægri en hjá gagn­kynhneigðum körlum sem höfðu um 8,9 milljónir króna í atvinnu­tekjur á árinu. „Munurinn er athyglisverður í ljósi þess að menntunar­stig homma í rann­sókninni er mun hærra en gagn­kynhneigða samanburðar­hópsins. Um 50% homma eru með háskóla­menntun en aðeins 36% gagn­kynhneigðra karla,“ segir um niður­stöður rann­sóknarinnar. Þar segir einnig að hommar eru líklegri en gagn­kynhneigðir karlar til þess að vinna í þjónustu­störfum, „eða í þeim störfum sem oft hafa verið kölluð „kvenna­störf“.“

Þessi kynhneigðar­halli er öfugur þegar horft er til kvenna. Lesbíur voru með um 13 prósent hærri atvinnu­tekjur en gagn­kynhneigðar konur að meðaltali árið 2019. Atvinnu­tekjur lesbía var um 6,3 milljónir árið 2013 saman­borið við 5,6 milljónir hjá gagn­kynhneigðum konum. Það virðist ekki vera einsdæmi hér á landi því nýleg rannsókn sem unnin var eftir sömu aðferða­fræði í Danmörku leiddi sambærilegar niður­stöður í ljós.

Atvinnuöryggið minnst meðal trans fólks

Sökum þess hve hátt hlutfall homma vinnur í þjónustu­greinum á almennum vinnu­markaði komu þeir verst út úr heims­faraldrinum þegar litið er til atvinnu­leysis. Um 38 prósent homma þáðu atvinnu­leysis­bætur árið 2020 en hlut­fallið fyrir karla í heild var 28 prósent. 23 prósent kvenna þáðu atvinnu­leysis­bætur á því ári.

Niður­stöður rann­sóknarinnar benda til þess að atvinnu­öryggi trans fólks sé minna en hjá öðru hinsegin fólki. Um 70 prósent trans fólks segist hafa upplifað atvinnu­leysi en til saman­burðar er hlut­fallið 40 prósent hjá þeim sem hafa sís-kynvitund.

Meirihluti svarenda, um 60 prósent, finnst halla á kjör og réttindi fólks á vinnu­markaði og telja sumir svarendur vinnu­markaðinn of sérsniðinn að þeim sem auðveldlega geta eignast börn.

Helmingur ánægður með stefnu stjórnvalda

„Aðeins um helmingur þeirra sem tóku þátt í rann­sókninni eru ánægð með stefnu stjórn­valda í málefnum hinsegin fólks og aðeins um 20% trans fólks,“ segir um niður­stöður könnunarinnar. Mikill meirihluti vill að lögð verði aukin áhersla á greiningar og rann­sóknir á aðstæðum hinsegin fólks á vinnu­markaði, svo sem hjá Hagstofu Íslands.

Engu að síður eru svarendur bjartsýnni um stöðu hinsegin fólks til framtíðar á Íslandi heldur en á heimsvísu. Einungis 20 prósent aðspurðra eru bjartsýn fyrir hönd hinsegin fólks á heimsvísu til framtíðar en 90 prósent þegar kemur að stöðunni hér á landi.

Fyrsti fasi rann­sóknar sem snýr að greiningu á hinsegin vinnu­markaði á Íslandi sneri að mestu leyti á saman­burði á stöðu samkyn­hneigðra og gagn­kynhneigðra. Í tengslum við rann­sóknina var framkvæmd spurninga­könnun meðal hinsegin fólks en henni svöruðu 850 í júní og júlí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár