Helgi Hrafn telur borðleggjandi að Sigríður segi af sér: „Tók meðvitaða ákvörðun um að fara á svig við lög“

Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, telur að Sigríður Andersen dómsmála­ráðherra eigi að sjá sóma sinn í að segja af sér embætti vegna brota á lögum við skipun dómara við Landsrétt.

Helgi Hrafn Gunnarsson
Helgi Hrafn Gunn­ars­son Þing­maður Pírata fer fram á afsögn dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Pressphotos.biz - (RosaBraga)

Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, telur að Sigríður Andersen dómsmála­ráðherra eigi að sjá sóma sinn í að segja af sér embætti vegna brota á lögum við skipun dómara við Landsrétt. Lögbrotin hafi verið augljós og fyrir­sjáanleg, enda hafi verið varað sérstak­lega við þeim þegar málið var til umfjöllunar á Alþingi. Þetta kom fram í umræðum á Alþingi undir liðnum störf þingsins nú á öðrum tímanum.

Hæstiréttur Íslands komst að þeirri niður­stöðu þann 19. desember að Sigríður Á. Andersen dómsmála­ráðherra hefði brotið lög þegar hún fór framhjá mati hæfnis­nefndar við skipun dómara í Landsrétt. Rannsókn ráðherra á hæfni umsækjenda var ófullnægjandi og máls­meðferðin þannig á skjön við 10. gr. stjórnsýslu­laga um rannsóknar­reglu stjórn­valda.

Fjöldi sérfræðinga hafði varað við því að með háttsemi sinni væri ráðherra og meirihluti Alþingis að brjóta lög, en engu að síður var málið keyrt í gegnum þingið á örfáum dögum með eins manns meirihluta.

Helgi Hrafn benti á það í ræðu sinni að í áliti minni­hluta þingmanna í sumar hefði verið vísað til dóma­fordæmis sem benti eindregið til þess að máls­meðferðin hjá ráðherra væri á skjön við lög.

 

 

 

Fordæmið er dómur Hæstaréttar í máli nr. 412/2010 frá 14. apríl 2011 þar sem fram kom að ráðherra hefði, við skipan héraðs­dómara í embætti, ekki uppfyllt rannsóknar­skyldu sína. „Ljóst er að liggja þarf fyrir fullnægjandi rökstuðningur fyrir því að þeir umsækjendur sem ráðherra leggur til séu a.m.k. jafnhæfir og þeir sem dómnefndin leggur til,“ sagði í áliti og bókun minni­hlutans síðasta sumar, og er nýlegur dómur Hæstaréttar í samræmi við þetta.

„Það er sama fordæmi og Hæstiréttur vísar til nú, Það er ekkert nýtt í dómi Hæstaréttar, ekki neitt. Þetta lá allt fyrir 1. júní,“ sagði Helgi í ræðu sinni.

„Dómsmála­ráðherra hæstvirtur tók meðvitaða ákvörðun um að fara á svig við lögin að mínu mati. Og það á ekkert að þurfa að kalla eftir því að hæstvirtir ráðherra axli þá ábyrgð. Þeir eiga að sjá það í sínum eigin sóma að bregðast við slíkum bersýni­legum og fyrir­sjáanlegum mistökum sem varað var við á sömu efnis­forsendum og Hæstiréttur hefur nú staðfest, að viðkomandi ráðherra axli ábyrgð og að sjálfsögðu segi af sér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár