Samskiptaforrit lokar samskiptarás mótmælenda í Íran

Telegram hefur lokað samskiptarás mótmælenda sem fyrir­tækið segir hvetja til ofbeldis. Írönsk stjórn­völd hóta fyrir­tækinu að úthýsa forritinu í eitt skipti fyrir öll úr landinu ef það hlýði ekki kröfum þeirra.

Telegram er smáforrit þar sem notendur nýta í samskipti sín á milli.
Telegram er smá­forrit þar sem not­endur nýta í sam­skipti sín á milli. Mynd: EPA

Telegram lokaði tíma­bundið spjallrás sem kallaði eftir ofbeldis­fullum mótmælum gegn ríkis­stjórn Írans síðastliðinn sunnudag.

Telegram fram­leiðir vinsælt skilaboða­smáforrit og er það notað víða í Íran. Rúmlega 40 milljónir manns nota for­ritið í land­inu en það er um helm­ingur íbúanna. Samkvæmt heimildum frétta­miðilsins Recode hefur það haft mikil áhrif á samskipti í mótmælunum í Íran gegn ríkis­stjórn Ayatollah Khamenei.

Umfangs­mikil mótmæli hafa verið í landinu undan­farna daga og viku. Tugir hafa verið drepnir og hundruðir fangelsaðir. Ali Khamenei æðsti­klerkur Írans hefur sagt óvini ríkisins að baki mótmælanna en upphaf­lega beindust mótmælin gegn versnandi efnahag og hækkandi matvæla­verði en hafa þau nú beinst gegn stjórn­völdum sjálfum. 

Framkvæmda­stjórar fyrir­tækisins hafa fengið athuga­semdir frá írönskum stjórn­völdum þess efnis að þeir verði að fylgjast með notendum smáforritsins og sérstak­lega mótmælendum.

Mohammad-Javad Azari Jahromi, fjarskipta­ráðherra Írans, sendi skilaboð til framkvæmda­stjóra og stofnanda fyrir­tækisins, Pavel Durov, á Twitter á laugar­daginn síðastliðinn, þar sem hann hvatti Telegram til að taka í taumana.

Durov svaraði um hæl og sagði að ákall um ofbeldi væri ekki liðið hjá Telegram og ef þetta yrði staðfest þá væri ekki um annað að ræða en að loka samskipta­rásinni. Ekki skipti máli stærð hennar eða pólitísk tengsl.

Aðrir samfélags­miðlar á borð við Facebook og Twitter hafa sömuleiðis þurft að skilgreina hvaða orðræða sé í lagi á miðlum þeirra og hvað falli undir brot á reglum þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár