Vill auka tolla á kínverskar vörur en aflétta banni á rússneskt fyrirtæki

Bandaríkja­stjórn viðraði í gær hugsanleg áform um að leggja tolla á allan kvínverskan innflutning annars vegar og aflétta viðskipta­banni við rússneskt álfyrirtæki hins vegar.

Donald Trump Bandaríkjaforseti
Donald Trump Banda­ríkja­for­seti Mynd: EPA

Forseti Banda­ríkjanna sagðist í gær vera tilbúinn til að leggja toll á allar kínverskar vörur sem fluttar væru inn til Banda­ríkjanna. Seinna sama dag sagði fjármála­ráðherra landsins bandarísku ríkis­stjórnina íhuga að aflétta viðskipta­bann á rússneska álfyrirtækið Rusal.

„Kína hefur okrað á okkur í langan tíma“

Í viðtali við CNBC í gær gaf Donald Trump forseti Banda­ríkjanna til kynna að hann væri tilbúinn að auka toll­skyldan innflutning frá Kína upp úr andvirði 34 milljarða Bandaríkja­dala upp í 500 milljarða, en sú upphæð jafn­gildir virði heildar­innflutnings Banda­ríkjanna frá landinu. „Ég er ekki að gera þetta vegna stjórn­málanna, ég er að gera þetta til þess að breyta rétt fyrir landið okkar,“ sagði Trump. „Kína hefur okrað á okkur í langan tíma.“

Í viðtalinu ítrekaði Trump að honum fannst illa hafa verið farið með Banda­ríkin í mörgum málefnum, þar á meðal í alþjóða­viðskiptum og peninga­mála stefnu. Hins vegar sagði hann að álagningar tollanna á kínverskar vörur hafi ekki verið settar á með illum hug. Hann sagðist einnig líka mjög vel við Xi Jinping, forseta Kína, en vill þó meina að viðskipta­kjörin milli landanna hafi verið ósann­gjörn.

Hugsa um að aflétta banni

Seinna sama dag tilkynnti frétta­stofa Reuters að Steven Mnuchin, fjármála­ráðherra Banda­ríkjanna, hafi viðrað mögu­leikann á því að fjarlægja viðskipta­banni Banda­ríkjanna á rússneska álfyrirtækið Rusal. Samkvæmt Mnuchin hafi áætlunin aldrei verið að „setja Rusal á hausinn.“

Þetta sagði Mnuchin í viðtali við frétta­stofuna í Argentínu, rétt fyrir leiðtoga­fund fjármála­ráðherra G20 ríkjanna. Samkvæmt fréttinni gefa ummælin til kynna að ríkis­stjórn Banda­ríkjanna hafi í huga að hjálpa álfyrirtækinu, sem reynt hefur að komast til móts við stjórnina eftir að fjármála­ráðuneytið setti á viðskipta­bann á það vegna eins eiganda þess, Oleg Deripaska.

Viðskipta­bannið á að hafa skapað ringul­reið á álmarkaðnum á heimsvísu, en nokkur lönd og fyrirtæki hafa síðan þá reynt að hnika til ákvörðun fjármála­ráðuneytis Banda­ríkjanna til að draga úr áhrifum á markaðnum.

Banda­ríkin hafa nú þegar lagt 10% toll á innflutning áls frá Kanada, Evrópu­sambandinu og Mexíkó, en Kjarninn greindi nýlega frá lækkandi afkomu Alcoa vegna þessa. Óttast er að frekari tolla­lagning muni eiga sér stað á næstunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár