Tollastríð veikir afkomu Alcoa

Alcoa breytti árlegu afkomuspá sína í gær og lækkaði hana um 14% vegna neikvæðra áhrifa bandarískra áltolla. Í kjölfar tilkynn­ing­ar­innar féll hlutabréfa­verð fyrir­tækisins um 4%.

Álver Alcoa Fjarðaráls á Reyðarfirði.
Álver Alcoa Fjarð­ar­áls á Reyð­ar­firði. Mynd: Úr safni.

Hlutabréf álfyrirtækisins Alcoa féllu í verði eftir að hafa lækkað árlegu afkomuspá sína um 14% í gær. Í tilkynningu fyrir­tækisins nefnir það sérstak­lega bandaríska innflutnings­tolla á áli og framboðs­skort á Vestur­löndum.

Vænt tap á áli og súráli

Alcoa birti í gær rekstrar­niðurstöður sínar úr öðrum ársfjórðungi þar sem félagið náði að skila 75 milljón Bandaríkja­dala hagnaði, eða um 0,39 dala hagnaði á hlut. Í meðfylgjandi tilkynningu breytti fyrir­tækið einnig rekstrarspá fyrir 2018, en vænt afkoma Alcoa fyrir skatta og fjármagns­kostnað (EBITDA) var lækkuð úr 3,5-3,7 milljörðum Bandaríkja­dala niður í 3,0-3,2 milljarða dala. Einnig er búist við tapi á fram­leiðslu áls og súráls, en hagnaði í báxít­framleiðslu.

Óttast frekari tolla

Í tilkynningu félagsins var sérstak­lega vikið að nýtilkomnum tollum Banda­ríkjanna á áli, en Donald Trump Bandaríkja­forseti innleiddi 10% tolla á álinnflutning frá Kanada, Evrópu­sambandið og Mexíkó fyrir tæpum tveimur mánuðum síðan. Í kjölfarið setti Evrópu­sambandið og Kína á tolla á ýmsar útflutnings­vörur Banda­ríkjanna og samkvæmt frétt CNBC er óttast að frekari tolla­lagning muni eiga sér stað á næstunni. Samkvæmt Alcoa munu tollarnir kosta fyrir­tækið 15 milljónir Bandaríkja­dala.

Tilkynningin kom út rúmlega fjögur um síðdegið á austur­strönd Banda­ríkjanna, en samkvæmt frétt Reuters lækkaði hlutabréfa­verð um fjögur prósent eftir lokun markaða í gær.

544 starfsmenn á Íslandi

Alcoa rekur stærsta álver Íslands, en það er staðsett á Reyðar­firði og hefur verið starfrækt frá árinu 2007. Útflutnings­verðmæti álversins á árinu 2017 voru um 81 milljarður króna, en það jafn­gildir um 10% prósentum af vergri lands­framleiðslu. Starfs­menn álversins í fyrra voru um 544.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár