Hóta að hætta nema fjármálaráðherra verði áfram formaður hollvinafélagsins

Stjórnar­maður í Holl­vinafélagi MR segir mótframboð ungs listfræði­nema gegn fjár­mála­ráð­herrra stefna starfi félagsins í hættu. „Stjórnar­menn geta vart hugsað sér að starfa áfram, verði gerð kúvending með þessum hætti.“

Hér má sjá fjármálaráðherra ásamt Yngva Péturssyni, rektor Menntaskólans í Reykjavík.
Hér má sjá fjár­mála­ráð­herra ásamt Yngva Pét­urs­syni, rektor Mennta­skól­ans í Reykja­vík. Mynd: Af Facebook-síðu Hollvinafélags MR

Stjórnar­menn Holl­vinafélags MR geta vart hugsað sér að gegna áfram störfum nema Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahags­ráðherra, verði áfram formaður félagsins. Frá þessu greinir Kristín Heimis­dóttir, stjórnar­maður í félaginu, í lokaðri grúppu útskrifaðra MR-inga á Facebook. 

Benedikt hefur sætt gagnrýni fyrir að sækjast eftir endur­kjöri sem formaður Holl­vinafélags Mennta­skólans í Reykjavík meðan hann kemur með beinum hætti að ákvörðunum um fjár­veitingar til framhalds­skóla sem fjármála­ráðherra Íslands. Hrafnkell Hringur Helgason, ungur listfræði­nemi, tilkynnti um mótframboð sitt í síðustu viku. „Það verður að teljast afar óheppilegt að fjármála­ráðherra gegni formanns­hlutverki í holl­vinafélagi stofnunar sem hann ákvarðar sjálfur fjár­framlög til,“ sagði Hrafnkell í frétta­tilkynningu. „Raunar yrði það Mennta­skólanum í Reykjavík til háðungar ef sami maður og stendur að stór­felldum niður­skurði til framhalds­skóla yrði áfram andlit holl­vinafélags skólans.“ 

Kristín Heimis­dóttir hefur setið í stjórn Holl­vinafélags MR allt frá stofnun félagsins og fullyrðir að Benedikt hafi sinnt hlutverki sínu sem formaður félagsins með sóma. „Á þessum árum hefur okkur tekist - með ykkar stuðningi og hjálp - að safna tæpum 15 milljónum sem hafa runnið beint til skólans,“ skrifar Kristín til gamalla skóla­félaga og bætir við: „Aðal­fundur félagsins fer fram á morgun. Á síðustu stundu barst mótframboð til formanns, en ungur listfræði­nemi og MR-ingur vill með þeim hætti mótmæla að fjármála­ráðherra, sem leggur fram fjármála­áætlun með skertum framlögum til mennta­mála, haldi áfram sem formaður félagsins. Ég vil taka það fram að Benedikt hefur unnið af heilindum og reynst einstak­lega málefna­legur í öllu starfi fyrir hollvini. Aldrei hef ég orðið vör við að önnur störf hans hafi haft áhrif inn í okkar starf fyrir MR.“

Segir Kristín að hún hafi áhyggjur af því að framboð listfræði­nemans ógni starfi Holl­vina­félagsins. „Menn geta haft sínar skoðanir, en ég hef áhyggjur af því að starfi Holl­vina­félagsins sé stefnt í hættu. Stjórnar­menn geta vart hugsað sér að starfa áfram, verði gerð kúvending með þessum hætti.“

„Ég hef áhyggjur af því að starfi
Holl­vina­félagsins sé stefnt í hættu“

Hún hvetur fyrr­verandi MR-inga til að mæta og styðja fjármála­ráðherra: „Því vil ég biðja alla þá sem mögulega geta, og vilja styðja við áfram­haldandi starf hollvina í núverandi mynd, að mæta á aðal­fundinn á morgun og styðja Benedikt og stjórnina til áfram­haldandi starfa. Atkvæðis­rétt á fundinum hafa allir hollvinir skólans, þ.e. í raun allir útskrifaðir MR-ingar.“ 

Hrafnkell Hringur tilkynnti um mótframboð sitt á föstu­daginn síðastliðinn en upplýsingar um framboð hans voru hvorki birtar á vef Mennta­skólans í Reykjavík né á vef Holl­vinafélags skólans fyrr en síðdegis í gær. „Ég hélt að venjan væri sú, þegar kosið er í stjórn og formennsku félaga, að tilkynnt væri um framkomin framboð þegar framboðs­frestur rynni út. Hér sýnist mér að ekki sé gætt jafnræðis milli framboðs míns og framboðs fjármála- og efnahags­ráðherra,“ sagði Hrafnkell þegar Stundin ræddi við hann í gær. 

Samkvæmt fjármála­áætlun ríkis­stjórnarinnar, sem Benedikt kynnti í apríl, verður dregið verulega úr fjár­framlögum til framhalds­skóla­stigsins næstu fimm árin og árið 2018 mun mennta­kerfið sæta fjórfalt strangari aðhalds­kröfu en gert var ráð fyrir í fjármála­áætlun síðustu ríkis­stjórnar. Stjórn­endur framhalds­skólanna og framhalds­skóla­kennarar hafa gagnrýnt áætlunina harðlega. Þá hefur ríkis­stjórnin einnig sætt gagnrýni vegna áforma um sameiningu Fjölbrauta­skólans í Ármúla og Tækni­skóla Íslands. 

Aðal­fundur Holl­vina­félagsins fer fram á morgun, laugardag, á hátíðarsal skólans kl. 13:00.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár