Segir að endurkjör Benedikts yrði skólanum til háðungar

Ungur listfræði­nemi gagnrýnir fjármála­ráðherra fyrir að vilja gegna formennsku í Holl­vinafélagi MR meðan hann sker niður til framhalds­skóla og býður sig fram á móti honum.

Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahags­ráðherra, hefur fengið mótframboð til formanns hjá Holl­vinafélagi Mennta­skólans í Reykjavík. Formanns­kjörið fer fram næstu helgi, en eins og Stundin greindi frá í síðustu viku sækist Benedikt eftir endur­kjöri. Hefur hann gegnt formanns­hlutverkinu allt frá stofnun félagsins.

Holl­vinafélagið hefur gagnrýnt að MR fái „lægri framlög en sambærilegir skólar“ í fjárlögum, en næsta haust kemur það í hlut Benedikts sjálfs að leggja fram frumvarp til fjárlaga. 

„Það verður að teljast afar óheppilegt að fjármála­ráðherra gegni formanns­hlutverki í holl­vinafélagi stofnunar sem hann ákvarðar sjálfur fjár­framlög til. Raunar yrði það Mennta­skólanum í Reykjavík til háðungar ef sami maður og stendur að stór­felldum niður­skurði til framhalds­skóla yrði áfram andlit holl­vinafélags skólans,“ skrifar Hrafnkell Hringur Helgason, listfræði­nemi sem býður sig fram til formanns Holl­vina­félagsins gegn fjármála­ráðherra.

Hrafnkell Hringur sendi fjöl­miðlum frétta­tilkynningu í kvöld og birti jafnframt yfir­lýsingu á Facebook-síðu sinni þar sem hann gagnrýnir framboð Benedikts harðlega og tilkynnir um eigið framboð. Hringur segir að sér þyki framboð Benedikts afar „torkennilegt“ og að hann telji sjálfan sig betur til þess fallinn að skapa frið um störf Holl­vina­félagsins. Óeðlilegt sé að fjármála­ráðherra landsins gegni hlut­verkinu.

Samkvæmt fjármála­áætlun ríkis­stjórnarinnar, sem Benedikt Jóhannesson kynnti í byrjun apríl, verður dregið verulega úr fjár­framlögum til framhalds­skóla­stigsins næstu fimm árin. Strax á næsta ári mun mennta­kerfið sæta fjórfalt strangari aðhalds­kröfu en gert var ráð fyrir í fjármála­áætlun síðustu ríkis­stjórnar. 

„Hverju sætir hún, þessi æpandi þögn Holl­vinafélags MR um niður­skurð Benedikts til framhalds­skóla?“

„Brátt eru liðnir tveir mánuðir síðan fjármála­áætlun Benedikts Jóhannessonar var kynnt almenningi. Stjórn­endur framhalds­skóla og framhalds­skóla­kennarar hafa gert alvarlegar athuga­semdir við áætlunina. Hins vegar hefur enn ekki heyrst múkk frá Holl­vinafélagi MR,“ skrifar Hrafnkell Hringur í framboðs­tilkynningu sinni. „Hverju sætir hún, þessi æpandi þögn Holl­vinafélags MR um niður­skurð Benedikts til framhalds­skóla? Getur hugsast að þögnin hafi eitthvað með það að gera að Benedikt er sjálfur formaður Holl­vina­félagsins?“

Hrafnkell segir að sem formaður Holl­vina­félagsins muni hann leggja höfuð­áherslu á að berjast af hörku gegn fjársvelti­stefnu Benedikts Jóhannessonar. „Ég skora á alla fyrr­verandi MR-inga sem eru ósáttir við fjársvelti­stefnu Benedikts Jóhannessonar að fjölmenna á aðalfund Holl­vina­félagsins sem fram fer laugar­daginn 27. maí kl. 13.00 í sal Mennta­skólans í Reykjavík,“ skrifar hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár