Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur þakið Ísland með bandaríska fánanum í nýrri færslu á samfélagsmiðli sínum, Truth Social. Trump hefur áður gert það sama með Venesúela og Grænland.
Í færslunni sést Grænland, Kanada, Mexíkó og Kúba, meðal annarra ríkja, þakið fánanum.
Eftir að Trump merki Venesúela fánanum réðst hann inn í landið og lét handataka forseta þess, Niculas Maduro, í byrjun janúar.
Skömmu síðar birti eiginkona Stephens Miller, hægri handar Trumps,mynd af Grænlandi undir bandaríska fánanum. Eftir það tvíefldist Trump í tilraunum til að komast yfir Grænland og innlima það í Bandaríkin.
Trump hefur lagt fram svokallaða „Donroe-kenningu“, sem byggir á Monroe-kenningunni frá 19. öld, um að nágrannaríki heyri undir áhrifasvið Bandaríkjanna en ekki Evrópu. Nú virðist hann hafa skilgreint Ísland meðal þeirra.
Íslendingar höfnuðu því í lok síðasta mánaðar að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið, en Trump hefur ekki tjáð sig um niðurstöðuna.
Trump stefnir opinberlega að stjórnarskiptum á Kúbu og hefur ekki útilokað innrás í eyjuna.
Ísland er með tvíhliða varnarsamning við Bandaríkin sem veitir þeim réttindi til viðbúnaðar hér á landi.
Samningurinn var uppfærður í tíð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra, án opinberrar umræðu.
Sérðu villu? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.















































"Agreement Between the
UNITED STATES OF AMERICA
and ICELAND
Effected by Exchange of Notes at
Reykjavik October 13 and 17, 2017"