Bill Gates: Vísindi, verkfræði og hagfræði lykilgreinar framtíðar

Frum­kvöð­ullinn Bill Gates segir grunnfög vísindanna, einkum á sviði raun­greina, verða mikilvæg á næstu árum.

Bill Gates, stofnandi Microsoft.
Bill Gates, stofn­andi Microsoft. Mynd: EPA

Bill Gates, ríkasti maður heims og stofnandi Microsoft, ásamt Paul Allen, segir að þrjár greinar muni skipta miklu máli þegar kemur að uppbyggingu í atvinnu­lífi framtíðar. Það séu grunnfög eins og vísindi, þar sem rannsóknar­starf fer fram, verkfræði og síðan hagfræði.

Mikilvægi góðrar þekkingar í stærð­fræði muni aukast og skilningur á verk­fræðilegum þáttum, til dæmis í tölvu­væddum heimi, verði afar mikil­vægur.

Í samtali við CNBC segir Gates að hæfni í forritun verði ekki aðal­atriðið, heldur frekar skilningur á því hvernig hlutir muni ganga fyrir sig. „Það verður mikilvægt fyrir fólk að skilja hvað verk­fræðin mun geta leyst, og hvað ekki,“ segir Gates.

Hann hefur talað fyrir því, ekki síst að undan­förnu, að miklar breytingar séu framundan í efnahags­lífi heimsins, meðal annars vegna gervi­greindar og aukinnar sjálf­virkni í iðnaði, sem muni breyta vinnuafls­þörf verulega. Þannig muni mörg störf hverfa og ný störf verða til.

Gates hefur sagt að mikilvægt sé fyrir samfélög að kort­leggja vel hvernig þau séu undirbúin fyrir þessar breytingar, og þá þurfi stjórn­málamenn einnig að vinna hratt að því að móta lög og reglur fyrir þennan nýja veruleika.

Fyrr á árinu sagði Gates það ekki vitlausa hugmynd að skatt­leggja vélmenni sem muni taka við störfum af fólki, og innleiða borgara­laun sem tryggja fólki lágmarks­framfærslu.

Samkvæmt lista Forbes var Gates ríkasti maður heims í fyrra, en hann hefur verið númer eitt á lista í átján skipti af síðustu 24 árum. Hrein eign Gates er metin upp á meira en 80 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um níu þúsund milljörðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár