Bankareikningar frystir í Angóla út af Samherjamálinu

Banka­reikningar fyrr­verandi sjávar­útvegs­ráðherra Angóla og fjölskyldu­meðlima hennar hafa verið frystir. Þau liggja undir grun um að hafa þegið mútur frá Samherja sem greiddar voru til þess að komast yfir ódýran kvóta.

João de Barros, sonur angólska ráðherrans, Antonio, ráðgjafi sama ráðherra, Tamson Hatuikulipi, Þorsteinn Már Baldvinsson, þá forstjóri Samherja, James Hatuikulipi og Sacky Shanghala í Hafnarfjarðarhöfn í nóvember 2013.
João de Barros, sonur angólska ráð­herr­ans, Antonio, ráð­gjafi sama ráð­herra, Tamson Hatuikulipi, Þor­steinn Már Bald­vins­son, þá for­stjóri Samherja, James Hatuikulipi og Sacky Shang­hala í Hafn­ar­fjarð­ar­höfn í nóv­em­ber 2013. Mynd: Bára Huld Beck

Banka­reikningar Victória de Barros Neto, fyrr­verandi sjávar­útvegs­ráðherra Angóla, eigin­manns hennar og barna hafa verið frystir og sakamál hefur verið höfðað á hendur henni. Þetta kom fram angólska dagblaðinu Jornal De Angola á sunnudag.

Ástæðan er ætluð þátttaka hennar í Samherja­málinu svokallaða, þar sem hún á að hafa leikið hlutverk í athæfi sem fól í sér mútu­greiðslur, peninga­þvætti og skattsvik. Á meðal þeirra sem eiga að hafa notið góðs af greiðslum til sjávar­útvegs­ráðherrans fyrr­verandi er João de Barros, einn barna ráðherrans fyrr­verandi. Hann hefur meðal annars heimsótt Samherja til Íslands og má sjá mynd af honum hér að ofan. Með honum á myndinni eru Antonio, ráðgjafi sama ráðherra, Tamson Hatuikulipi, Þorsteinn Már Baldvinsson, þá forstjóri Samherja, James Hatuikulipi og Sacky Shanghala. Hún var tekin í Hafn­arfjarðarhöfn í nóvember 2013. 

Þetta átti sér stað í kjölfar þess að dómari í Namibíu gaf út handtöku­skipun á hendur De Barros Neto vegna málsins. Hún bætist þar með í hóp sex Namibíu­manna, þar af tveggja fyrr­verandi ráðherra, sem hafa verið ákærðir vegna málsins.

Í blaðinu er haft eftir talsmanni saksóknara­embættis í Angóla að viðræður um afmörkun séu í gangi milli angólskra og namibískra stjórn­valda um lögsögu í málinu, þar sem að stjórnar­skrá Angóla heimili ekki framsal á ríkis­borgurum landsins til annars lands.

Sex þegar ákærðir í Namibíu

Kveikur og Stundin greindu frá því 12. nóv­em­ber að ­Sam­herji lægi undir grun um að hafa greitt mútur til að tryggja aðgengi að ódýrum kvóta í Namib­íu og Angóla. Hægt er að lesa umfjöllun Kveiks um Angólu­hluta fyrir­komulagsins hér. Auk þess hefur er grunur um að Sam­herji hafi stundað umfangs­­mikið pen­inga­þvætti og skatta­snið­­göngu.

Málið byggir á frá­sögn upp­ljóstr­ar­ans Jóhann­esar Stef­áns­son­ar, sem starf­aði hjá Sam­herja í Namibíu og hefur sjálfur við­ur­kennt að hafa tekið þátt í umfangs­miklum lög­brotum fyr­ir­tæk­is­ins, og gríð­ar­legu magni af gögnum sem hann lét Wikileaks í té. Þau gögn eru nú aðgengi­leg á internetinu. Al Jazeera sjón­varps­stöðin tók einnig þátt í opin­ber­un­inni og birti sinn hluta hennar í byrjun desember

Bern­hard Esau, fyrr­ver­andi sjá­v­­­ar­út­­­vegs­ráð­herra Namib­­íu, Sacky Shanghala, fyrr­ver­andi dóms­­mála­ráð­herra Namib­­íu, og fjórir aðrir menn voru nýverið ákærðir fyrir að hafa þegið 103,6 millj­­ónir namibískra doll­­ara, jafn­­virði 860 millj­­óna íslenskra króna, í greiðslur fyrir að tryggja félögum tengdum Sam­herja eft­ir­­sóttan kvóta í land­in­u.

Auk Shanghala og Esau voru James Hatuikulipi, sem hætti sem stjórn­­­ar­­for­­maður namibísku rík­­is­út­­­gerð­­ar­innar Fishcor nýver­ið, Tamson 'Fitty' Hatuikulipi, tengda­­sonur Esau, Ricardo Gustavo, sam­­starfs­­maður hans og Pius Mwatelulo, sem einnig teng­ist Hatuikulipi fjöl­­skyld­u­­bönd­um, ákærð­ir.

Sam­herj­a­málið er einnig til rann­sóknar í Nor­egi, þar sem fyr­ir­tækið hefur verið í banka­við­skiptum við DNB, og á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verjanna tuttugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólöglegrar uppsagnar Samherja­félags í Namibíu, kallar eftir því að Íslendingar axli ábyrgð á framkomu sinni í Namibíu. Það standist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af málinu. Forstjóri Samherja lofaði því að fyrir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bindingar og sérstak­lega hugað að sjómönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár