Stjórnarskrármálið í biðstöðu

Þingmanna­nefnd um stjórnar­skrár­breytingar hefur enn ekki verið sett á fót, en hátt í fimm ár eru frá því að tillögur stjórnlaga­ráðs voru samþykktar í þjóðar­atkvæða­greiðslu sem grunnur að nýrri stjórnar­skrá.

Stjórnarskrármál í dvala
Stjórn­ar­skrár­mál í dvala Lítið er að frétta af stjórn­ar­skrár­breyt­ing­unum sem almenn­ingur greiddi atkvæði um fyrir hátt í fimm árum.

Ríkis­stjórnin hefur enn ekki sett á fót nefnd um endur­skoðun stjórnar­skrárinnar þrátt fyrir fyrirheit sem gefin voru í stjórnar­sáttmálanum sem undir­ritaður var þann 10. janúar síðastliðinn. 

Í stjórnmála­ályktun ársfundar Bjartrar framtíðar sem fór fram á föstudag kemur fram að flokkurinn leggi „mikla áherslu á að vinna við endur­skoðun stjórnar­skrár í samræmi við stjórnar­sáttmála hefjist sem allra fyrst“. Þetta sé nauðsynlegt ef ná eigi markmiði stjórnar­sáttmálans um að tillögur að stjórn­laga­breytingum verði lagðar fram eigi síðar en árið 2019.

Brátt verða fimm ár liðin síðan landsmenn gengu að kjör­borðinu og kusu um tillögur stjórnlaga­ráðs að nýrri stjórnar­skrá. Yfir­gnæfandi meirihluti kjósenda greiddi atkvæði með tillögunum og lýsti jafnframt yfir eindregnum stuðningi við að sett yrðu ákvæði um þjóðar­atkvæða­greiðslur, þjóðar­eign auðlinda og innleiðingu persónu­kjörs. Enn hafa þó engar varanlegar stjórn­laga­breytingar verið samþykktar á Alþingi, ekki einu sinni ákvæði um þjóðar­eign auðlinda sem 74 prósent kjósenda studdu.

Við þinglok árið 2013 …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár