Halyna Hutchins – Mögnuð listakona sem var á hraðri uppleið

Hún var elsku­leg, hlý, fyndin, heill­andi á hraðri upp­leið. Og dásam­leg móðir. Með þessum hætti er kvik­mynda­töku­stjór­ans Halyna Hutchins minnst. Hún varð fyrir skoti úr leik­muna­byssu á töku­stað kvik­mynd­ar­innar Rust í gær.

Halyna Hutchins fæddist í Úkraínu, ólst upp á herstöð á norðurslóðum og nam kvikmyndatökustjórn í Los Angeles.
Halyna Hutchins fædd­ist í Úkraínu, ólst upp á her­stöð á norð­ur­slóðum og nam kvik­mynda­töku­stjórn í Los Angeles. Mynd: Instagram/Halyna Hutchins

Halyna Hutchins, 42 ára kvik­mynda­töku­stjóri, var við störf á töku­stað mynd­ar­innar Rust í Santa Fe í Nýju Mexíkó í gær þegar hún varð fyrir skoti úr leik­muna­byssu. Alec Baldwin, aðal­leik­ari og einn af fram­leið­endum mynd­ar­innar, hleypti af skot­inu.

Atvikið átti sér stað rétt fyrir klukkan 14 í gær að stað­ar­tíma á búgarði við Bonanza Creek þar sem upp­tökur á vestr­anum fara fram. Hutchins var skotin í mag­ann og var flutt með þyrlu á sjúkra­hús í Nýju Mexíkó þar sem hún lést af sárum sínum. Leik­stjór­inn Joel Souza varð einnig fyrir skoti en hann hefur verið útskrif­aður af sjúkra­húsi. Rannsókn lög­reglu stendur yfir en ákæra hefur ekki verið gefin út. Baldwin gaf skýrslu fljót­lega eftir atvikið að eigin frum­kvæði.

Hutchins fædd­ist í Úkraínu og ólst upp meira og minna á her­stöð á norð­ur­skaut­inu. Hún hóf starfs­feril sinn sem blaða­maður en færði sig yfir í kvik­mynda­geir­ann eftir að hafa starfað við kvik­mynda­fram­leiðslu á breskum kvik­myndum í Austur-Evrópu. Hún flutti síðar til Banda­ríkj­anna þar sem hún útskrif­að­ist úr AFI- kvik­mynda­skól­anum í Los Angeles árið 2015. Fyrir tveimur árum útnefndu lands­sam­tök kvik­mynda­töku­stjóra hana eina af efni­leg­ustu kvik­mynda­töku­stjórum Banda­ríkj­anna.

Hutchins virt­ist kunna vel við sig á búgarð­inum þar sem tök­urnar fóru fram, að minnsta kosti ef marka má Instagram en á þriðju­dag birti hún mynd­skeið af sér á hest­baki á töku­stað.

Heillandi og hæfileikarík mamma

Kvik­mynda­heim­ur­inn er í sárum vegna frá­falls Hutchins. Adam Egypt Mortimer, leik­stjóri hasar­mynd­ar­innar Archeny, vann með Hutchins við gerð mynd­ar­innar á erfitt með að átta sig á því að svona nokkuð geti gerst. „Halyna var ótrú­leg lista­kona sem var að hefja feril sem ég held að margir voru að taka eftir,“ segir Mortimer í sam­tali við BBC.

Þá velti hann sér fyrir hvernig svona nokkuð geti gerst, bæði úr frá þeim örygg­is­sjón­ar­miðum sem tíðkast í kvik­mynda­iðn­að­inum, auk þess sem hann á erfitt með að átta sig á þeirri stað­reynd að Hutchins hafi fallið frá með þessum hætti.

Elskuleg, hlý, fyndin, heill­andi og opin. Og fyrst og fremst hæfi­leik­a­rík. Þannig lýsir Catherine Goldschmidt kvik­mynda­töku­stjóri vin­konu og sam­starfs­konu sinni. „Hún var einnig mamma, og það er það erf­iða,“ segir Goldsmith, sem dáð­ist að Hutchins fyrir að ná að sam­tvinna móð­ur­hlut­verkið og starfs­fram­ann, eitt­hvað sem konur í Banda­ríkj­unum hafa þurft að berj­ast fyrir.

Leik­stjór­inn og kvik­mynda­töku­stjór­inn Elle Schneider minn­ist Hutchins á Twitter þar sem hún seg­ist orð­laus yfir harm­leiknum og krefst hún svara. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem and­lát verður á töku­stað með þessum hætti en harm­leik­ur­inn minnir óneit­an­lega á dauða leik­ar­ans Brandon Lee, son Bruce Lee, sem lést við tökur á kvik­mynd­inni The Crow árið 1993. Þá reynd­ist raun­veru­leg byssu­kúla vera í skot­vopni sem notað var við tökur. Systir Lee vottar aðstand­endum Hutchins samúð sína í færslu á Twitter.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár