ASÍ varar við óábyrgri hagstjórn og gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir að hunsa ábendingar sérfræðinga

ASÍ furðar sig á stað­hæfingum fjármála­ráðherra um að minni samkeppnis­hæfni sé aðallega vegna launa­þróunar: „Minni samkeppnis­hæfni útflutnings­greina má fyrst og fremst rekja til styrkingar á nafngengi krónunnar. Hlutdeild launa­fólks í hagvextinum er síst of stór.“

Ríkis­stjórnin hefur ekki kynnt nein heildstæð áform um að styrkja tekju­grunn ríkisins til frambúðar svo hægt sé að standa undir auknum útgjöldum til langs tíma. Hætt er við því að þegar um hægist í efnahags­lífinu muni tekjur ríkis­sjóðs ekki duga til að fjármagna núverandi útgjalda­stig. Þannig þurfi jafnvel að grípa til aðhalds­aðgerða þegar síst skyldi, það er niður­skurðar eða aukinnar skatt­heimtu.

Þetta kemur fram í umsögn Alþýðu­sambands Íslands um fjármála­stefnu ríkis­stjórnarinnar sem fjár­laganefnd barst í dag. „ASÍ telur tvísýnt hvort að sú fjármála­stefna sem hér er sett fram muni styðja við efnahags­legan og félags­legan stöðug­leika á komandi árum sökum þeirra annmarka sem á henni eru,“ segir í umsögninni.

„Samkvæmt stefnunni á fyrst og fremst að auka útgjöld með því að draga úr afgangi af ríkis­rekstrinum á sama tíma og dregið er úr tekju­öflunar­áformum fyrri ríkis­stjórnar. Hætt er við áform um að færa ferða­þjónustu­tengda starfsemi í efra þrep virðis­aukaskatts og fyrir­hugaðar eru frekari skatta­lækkanir. Engin áform virðast hins vegar uppi um að styrkja tekju­grunn ríkisins til frambúðar til að standa undir auknum útgjöldum.“ 

Ábendingar fjármálaráðs ítrekað hunsaðar

ASÍ gagnrýnir stjórn­völd fyrir að hunsa ítrekað þær ábendingar sem fram koma í umsögnum fjármála­ráðs um hagstjórn og fram­setningu fjármála­áætlana og fjármála­stefna. Þannig sé til að mynda ómögulegt að meta aðhalds­stig fjármála­stefnunnar með fullnægjandi hætti í ljósi þess að í henni er ekki að finna greiningu á hagsveiflu­leiðréttum frum­tekjum og frum­gjöldum. 

Í álitsgerð fjármála­ráðs um fjármála­stefnuna sem Stundin fjallaði um í byrjun janúar er varað sérstak­lega við því að ráðist verði í stór­fellda aukningu ríkis­útgjalda án samsvar­andi tekju­öflunar. Aðrar aðfinnslur fjármála­ráðs lúta til dæmis að áformum ríkis­stjórnarinnar um áfram­haldandi skattaívilnun fyrir ferða­þjónustuna, óljósri fram­setningu og skorti á ítarupplýsingum, ósamræmi milli stefnu­mörkunar og spágerðar og áformum um þenslu­hvetjandi ráðstafanir án þess að neinar mótvægis­aðgerðir séu tilgreindar.

„Hlutdeild launafólks í hagvextinum er síst of stór“

Í greinar­gerð sem fylgir fjármála­stefnunni, sem lögð er fram í formi þings­ályktunar­tillögu frá Bjarna Benedikts­syni fjármála­ráðherra, er fullyrt að raungengi á mæli­kvarða launa hafi hækkað verulega síðastliðin ár sem dragi mjög úr samkeppnis­hæfni útflutnings­greina, sérstak­lega þeirra sem eru með hlutfalls­lega háan launa­kostnað, svo sem nýsköpunar- og tækni­greina.

„Í síðustu kjara­samnings­lotu var samið um launa­hækkanir sem voru verulega umfram framleiðni­vöxt en slík þróun er ósjálfbær til lengri tíma litið. Vegna hagfelldra ytri skilyrða rættust ekki spár um ólgu í efnahags­málum í kjölfar svo mikilla launa­hækkana,“ segir í greinar­gerð fjármála­ráðherra. 

ASÍ lýsir furðu á stað­hæfingum sem fram koma í þessum kafla. „Minni samkeppnis­hæfni útflutnings­greina má fyrst og fremst rekja til styrkingar á nafngengi krónunnar síðastliðinn ár en ekki launa­þróunar. Þá sýna þær launa­hækkanir sem verið hafa umfram kjara­samninga á síðustu árum berlega að hlutdeild launa­fólks í hagvextinum er síst of stór,“ segir í umsögn ASÍ. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eftir­minnilega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tímabil“ fyrir Vinstri græn að fara í ríkis­stjórnar­samstarf með Sjálfstæðis­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíðinni þá þarf það nátt­úrlega að hafa afleiðingar fyrir flokk að miðla málum svo hressilega að það er ekkert eftir af hugsjónunum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raungerst. Flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum og hefur ekki sammælst um nýja forystu eftir brott­hvarf eins vinsælasta stjórn­málamanns landsins og flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum. Hvort flokkurinn sé nægilega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrýmingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hugsjóna­flokkur verður að borgara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síðustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trúverðug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokkurinn talaði áður skýrt á móti. Samhliða hefur róttækt fólk úr gras­rótinni yfirgefið Vinstri græn, kjósenda­hópurinn breyst, hratt gengið á pólitíska inneign Katrínar Jakobs­dóttur og fylgi flokksins hrunið. Þetta er fórnar­kostnaður þess að komast að völdum með áður yfir­lýstum pólitískum andstæðingum sínum.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár