Kvikmyndaskólinn biðst afsökunar

Stjórn skólans og rektor bregðast við umfjöllun Stundarinnar, segja að kvartanir hafi ekki verið „meðhöndlaðar með eðlilegum hætti“ og lofa úrbótum þegar á næstu önn.

Stigu fram
Stigu fram Sigrún Sól Ólafs­dóttir og Rósa Ásgeirs­dóttir voru á meðal fjöl­margra kvenna sem stigu fram í síð­asta blaði til þess að greina frá marka­leysi í sam­skiptum kenn­ara við nem­endur í Kvik­mynda­skól­anum. Rósa þurfti að end­ur­gera útskrift­ar­verk­efnið sitt á viku eftir að kenn­ari í skól­anum reyndi að kyssa hana og gekk út úr verk­efn­inu þegar hún hafn­aði honum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Kvikmynda­skóli Íslands hefur greint nemendum skólans frá því að brugðist verði við frásögnum fyrr­verandi nemenda og kennara skólans, sem greindu frá marka­leysi, vald­beitingu og kynferðis­legum samskiptum kennara við nemendur og aðgerðar­leysi stjórn­enda, í síðasta tölublaði Stundarinnar. 

„Ætli hann hafi ekki farið eins langt og hann taldi sig komast með hverja og eina, því hver hefur mismun­andi mörk. Fyrir utan að fólk á misauðvelt með að setja mörk,“ sagði Tanja Björk Ómars­dóttir, sem var boðið á barinn af kennaranum til að ræða ferilinn og fram­tíðina en þurfti að sitja undir kynlífs­lýsingum hans.

Önnur, Íris Kristins­dóttir, sagðist hafa tilkynnt framgöngu kennarans til deildar­stjóra og fengið þau skilaboð að hún ætti ekki að tala um þetta. „Ég varð vitni að því þegar hún fór með þetta lengra og horfði upp á að það væri ekkert aðhafst. Hann mætti aftur í skólann eins og ekkert hefði í skorist,“ sagði vinkona hennar. 

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár