„Óska Íslendingum til hamingju með hann“

Sigurður Ingi Jóhannsson er forsætis­ráðherra nýrrar ríkis­stjórnar. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson óskar þjóðinni til hamingju með hann. Misskiln­ingur varð í Alþingis­húsinu í samskiptum við fjölmiðla.

Sigurður Ingi Jóhannsson
Sigurður Ingi Jóhanns­son Nýr for­sæt­is­ráð­herra Íslands. Mynd: Kristinn Magnússon

„Næsti forsætis­ráðherra er traustur og góður maður og það er ástæða til að óska Íslendingum til hamingju með hann,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fráfar­andi forsætis­ráðherra, í samtali við hóp frétta­manna í Alþingis­húsinu fyrir skemmstu. Hann sagði hins vegar ekki hver væri nýr forsætis­ráðherra. „Jæja, ég held að þið getið nú getið ykkur til um það. Mér finnst líka eðlilegt að á þessu kvöldi leyfi ég honum svolítið að eiga sviðið,“ sagði Sigmundur, brosti og yfirgaf svæðið.

Höskuldur Þór Þórhallsson þingmaður kom næstur og sagði að Sigurður Ingi Jóhannsson verði forsætis­ráðherra. Það var staðfest síðar þegar Bjarni Benediktsson og Sigurður Ingi ræddu við fjölmiðla.

Sigurður Ingi og Bjarni sögðu að ekki yrði gerður nýr málefna­samningur heldur yrði haldið áfram með þau mál sem ríkis­stjórnin hafði á prjónunum.

Viðtal fyrir mistök

Höskuldur hafði farið í viðtal hjá hópi fjölmiðla­manna í Alþingis­húsinu fyrir mistök, en hann taldi að nýr forsætis­ráðherra hefði þegar stigið þar fram og sagðist ekki hafa ætlað sér í viðtal á undan honum.

„Mér skilst að það sé ekki búið að raða niður endanlega í ráðherra­embætti,“ sagði Höskuldur Þór og útskýrði svo að hann teldi að Sigurður Ingi Jóhannsson og Bjarni Benediktsson hefðu þegar rætt við frétta­menn, en svo var ekki. „Ég bjóst reyndar við því að þeir væru búnir að taka viðtal. Ég bara var að rölta heim til mín, svo ég segi nú bara alveg hrein­skilið,“ sagði hann. „Framsóknar­flokkurinn hefur orðið fyrir skaða, eins og Sigurður Ingi nefndi í dag í fjöl­miðlum, en ég hélt og stóð í þeirri meiningu að sá sem mun taka við forsætis­ráðherra­embættinu, vonandi, hefði nú þegar tekið viðtal og gekk þess vegna hérna reiðu­búinn að svara spurningum.“

Höskuldur yfirgaf því svæðið.

Mörgum spurningum er því enn svarað varðandi nýja ríkis­stjórn.

Samkvæmt svörum leiðtoga stjórnar­andstöðunnar verður kosningum flýtt. Stjórnar­andstaðan leggur engu að síður til þingrof og kosningar. „Þeir komu ekki með neinn lista yfir hvað þeir ætluðu að klára,“ sagði Birgitta Jóns­dóttir, þingmaður Pírata.

Stundin fjallaði um umdeildan feril Sigurðar Inga á ráðherra­stóli í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár