Flynn játar að hafa logið að FBI

Michael Flynn, fyrr­verandi þjóðar­öryggis­ráðgjafi Banda­ríkjanna, hefur játað brot á lögum og hyggst vinna með alríkis­lögreglunni FBI.

Michael Flynn, fyrr­verandi þjóðar­öryggis­ráðgjafi Donalds J. Trump, Bandaríkja­forseta, hefur játað að hafa logið að bandarísku alríkis­lögreglunni FBI og hyggst vinna með yfir­völdum að frekari rannsókn á tengslum Rússa við kosninga­baráttuna í Banda­ríkjunum í fyrra.

Í umfjöllun New York Times segir að Flynn hafi ákveðið að vinna með saksókn­aranum, Robert Mueller, og teymi hans, eftir að honum voru settir afar­kostir, sem meðal annars beindust að því að yfirvöld myndu taka þátt sonar Flynn, Michael Flynn Jr., til sérstakrar frekari skoðunar, með ákæru í huga.

Talið er að Mueller og teymi hans beini nú spjótum sínum að Jared Kushner, tengda­syni forsetans, en hann er sagður hafa verið í samskiptum við Flynn og reynt að koma á sambandi við Rússa.

Flynn var þjóðar­öryggis­ráðgjafi Trumps í rúmlega þrjár vikur, en hann hætti störfum, þar sem talið var að hann hefði ekki greint Mike Pence, vara­forseta, rétt frá samskiptum sínum við Sergei Kislyak, þáverandi sendi­herra Rússlands í Banda­ríkjunum. Áttu þeir meðal annars að hafa rætt um viðskipta­þvinganir gagnvart Rússum og hvort það væri hægt að slaka á þeim.

Flynn komst fyrst almennilega í fréttirnar þegar hann hélt þrumuræðu á fundi Repúblikana í aðdrag­anda kosninganna í fyrra, og lét meðal annars orðin falla um að það ætti að „læsa hana inni“ (lock her up) og vísaði þar til Hillary Clinton, fram­bjóðanda Demókrata.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár