Spennan við gervigreindar-tónlist snýst upp í andhverfu sína

Tónlistar­maðurinn Svein­björn Thorarensen segir traustið á milli tónlistar­mannsins og hlustandans rofna með tilkomu tónlistar sem alfarið er gerð af gervi­greind. Spotify dreifir henni og Svein­björn segir ástæðuna þá sömu og lengi hefur þekkst í bransanum: „Til þess að þurfa ekki að borga tónlistar­fólki.“

Sveinbjörn Thorarensen
Svein­björn Thoraren­sen Tón­list­ar­mað­ur­inn Hermi­gervill sér fyrir sér að hægt verði að þykj­ast spila live á tón­leikum án þess að kunna að syngja eða spila á hljóð­færi. Mynd: Víkingur Óli Magnússon

Er tónlistin sem ég hlusta á búin til af alvöru tónlistar­manni eða ekki? Þetta er spurning sem æ fleiri spyrja sig þessa dagana með tilkomu forrita eins og Suno sem geta búið til lög með aðstoð spuna­greindar. Ekki þarf nema að tikka í nokkur box og forritið skilar lagi sem hlustandinn gæti vel haldið að hafi verið sungið og spilað af mennskri hljómsveit í hljóðveri. Textann má skrifa sjálfur eða láta ChatGPT sjá um það líka eins og svo margt annað.

Fyrir vikið hafa stokkið fram á sjónar­sviðið „tónlistar­menn“ sem ekkert hafa lært um tónlist. Einn þeirra, Oliver McCann, gerði nýverið plötu­samning eftir að lag sem hann lét gervi­greind búa til frá grunni fékk 3 milljónir spilana. „Ég hef enga tónlistar­hæfileika,“ sagði hann við AP-frétta­stofuna. „Ég kann ekki að syngja, ég kann ekki að spila á hljóðfæri og ég hef engan bakgrunn í tónlist.“

Önnur „hljómsveit“, …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Gervigreindin tekur yfir

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár