Óttarr skipar fyrrverandi stjórnarformann Bjartrar framtíðar sem stjórnarformann Sjúkratrygginga

Brynhildur S. Björns­dóttir, fyrr­verandi vara­þingkona og stjórnar­formaður Bjartrar framtíðar, mun fara fyrir mótun langtíma­stefnu fyrir Sjúkra­tryggingar Íslands.

Óttarr Proppé heilbrigðis­ráðherra hefur skipað Brynhildi S. Björns­dóttur, fyrr­verandi stjórnar­formann og vara­þingkonu Bjartrar framtíðar, sem stjórnar­formann Sjúkra­trygginga Íslands. Þetta kemur fram í frétta­tilkynningu frá ráðuneytinu.

Brynhildur sótti nám í Harvard Business School árið 2016, lauk MSc. gráðu frá Háskóla Íslands í stjórnun og stefnu­mótun árið 2009 og BA frá Háskólanum á Bifröst í hagfræði, heimspeki og stjórnmála­fræði árið 2007. 

Hún var stjórnar­formaður Bjartrar framtíðar 2015-2016 og átti sæti á Alþingi sem vara­þingmaður fyrir Bjarta framtíð á síðasta kjör­tímabili. Eftir að ríkis­stjórn Bjartrar framtíðar, Viðreisnar og Sjálfstæðis­flokksins tók við hefur Brynhildur haldið uppi vörnum og hvatningu fyrir ráðherra Bjartrar framtíðar á Facebook-síðu sinni.

Þegar greint var frá því í febrúar að Björt Ólafs­dóttir umhverfis­ráðherra hefði gefið Alþingi rangar upplýsingar um ráðstafanir ríkis­stjórnarinnar til að fylgja stjórnar­sáttmála sínum eftir skrifaði Brynhildur: „Þetta er mesta 'much ado about nothing' sem ég hef séð lengi. Póteitó-pótató. Hver skilur eða pælir í þessum fáránlega háfleygu orðum á þingi? And who really cares?“ Þá hefur hún ítrekað hrósað Óttari Proppé fyrir störf hans sem heilbrigðis­ráðherra og furðað sig á gagnrýni sem hann hefur sætt.

Hlutverk stjórnar Sjúkra­trygginga Íslands er að staðfesta skipulag stofnunarinnar, árlega starfs­áætlun og fjárhags­áætlun og marka henni langtíma­stefnu. Stjórnin hefur jafnframt eftirlit með starfseminni og að rekstur stofnunarinnar sé innan ramma fjárlaga á hverjum tíma.

Á meðal fyrri stjórnar­formanna Sjúkra­trygginga eru Björn Zoëga, læknir og fyrr­verandi forstjóri Land­spítalans, Benedikt Jóhannesson trygginga­stærð­fræðingur og núverandi fjármála­ráðherra og Dagný Brynjólfs­dóttir, fyrr­verandi deildar­stjóri í heilbrigðis­ráðuneytinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár