Gagnafárið í Alþjóðabankanum

Kristalina Georgieva framkvæmda­stjóri Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins verður ekki beðin um að víkja úr starfi sínu þrátt fyrir ásakanir um að hún hafi beitt undirmenn þrýstingi um að fegra gögn um Kína í fyrra starfi sínu hjá Alþjóða­bankanum.

Kristalina Georgieva er og verður áfram framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Krist­al­ina Georgi­eva er og verður áfram fram­kvæmda­stjóri Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins. Mynd: EPA

Síðustu vikur hafa verið ansi viðburða­ríkar á vettvangi tveggja helstu stofnana fjármála­heimsins, Alþjóða­bankans og Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins. Ástæðan er hálfgert gagnafár sem kom upp hjá Alþjóða­bankanum og ásakanir um að Kristalina Georgieva, sem nú er framkvæmda­stjóri Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins, hefði beitt sér fyrir því í sínu fyrra starfi að útkoma Kína yrði fegruð í árslegri skýrslu Alþjóða­bankans um samkeppnis­hæfni, Doing Business, fyrir árið 2018.

Við innra eftirlit hjá Alþjóða­bankanum kom fram að eitthvað óeðlilegt hafði átt sér stað í gagna­vinnslu bæði fyrir skýrsluna sem kom út árið 2018 og þá sem kom út fyrir árið 2020 – en þá reyndar í tilfelli gagna um Sádi-Arabíu og Sameinuðu arabísku fursta­dæmin en ekki Kína. Starfs­menn töldu ekki allt með felldu.

Sökuð um að hafa beitt sér með beinum hætti

Bankinn réði því óháða rann­sakendur hjá lögfræði­stofunni WilmerHale til þess að fara yfir málin og niður­stöður í skýrslu þeirra reyndust síður en svo hagfelldar Georgievu, sem var framkvæmda­stjóri stofnana Alþjóða­bankans áður en hún var skipuð í framkvæmda­stjóra­stöðuna hjá Alþjóða­gjaldeyris­sjóðnum árið 2019.

Í skýrslunni frá WilmerHale, sem birt var 15. september, sagði nefnilega að Georgieva hefði með beinum hætti komið að því, ásamt öðrum æðstu stjórn­endum bankans, að kokka upp leiðir til þess að koma í veg fyrir að niður­staða Kína yrði lakari í alþjóð­lega saman­burðinum fyrir árið 2018 en hún hafði verið í skýrslu fyrra árs. Í skýrslu rann­sakendanna segir að á sama tíma og verið var að vinna skýrsluna hafi bankinn verið að reyna að fá Kínverja til þess að samþykkja að láta af hendi aukið hlutafé og gefið var í skyn að þarna á milli hefði verið eitthvað samhengi.

Nýtur áfram trausts stjórnar AGS

Síðan skýrsla WilmerHale kom út hefur staða Georgievu, ef til vill eðlilega, verið í lausu lofti hjá Alþjóða­gjaldeyris­sjóðnum, en á mánudag lýsti stjórn sjóðsins, sem skipuð er 24 fulltrúum allra aðildar­ríkja, yfir fullu trausti á Georgievu til þess að leiða sjóðinn áfram. Ekki voru talin næg sönnunar­gögn fyrir því að hún hefði beitt sér með óeðli­legum hætti fyrir því að gögnum um Kína yrði breytt, eins og ýjað var að. Ýmsir höfðu stigið fram henni til stuðnings.

Sjálf hefur Georgieva varið sig af krafti frá því að niður­stöður WilmerHale voru opinberaðar fyrir tæpum mánuði. Í skriflegri yfir­lýsingu sem búlgarski hagfræðingurinn sendi framkvæmda­stjórn Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins þann 6. október sagði að niður­stöðurnar í skýrslu WilmerHale gæfu ekki rétta mynd af aðkomu hennar að gerð skýrslunnar.

Raunar sagði Georgieva að sögu­sögnum væri víða haldið á lofti sem stað­reyndum af hálfu skýrslu­höfunda, sem hefðu á einhvern óskiljanlegan hátt látið það fara algjör­lega fram hjá sér að kínversk stjórn­völd hefðu árum saman verið fylgjandi því að staðið yrði fyrir hlutafjár­aukningu í bankanum. Því væri það algjör­lega úr lausu lofti gripið að gefa sér það að matið á Kína hefði verið fegrað til að fá Kínverja að borðinu hvað það varðaði.

Hún sagði sömuleiðis að það væri alrangt að hún hefði beitt þrýstingi á undirmenn innan bankans um að fegra einkunn Kína í samanburðar­matinu, þvert á móti hefði hún gripið til aðgerða sem hefðu varið réttmæta notkun gagna, sem var sú að koma í veg fyrir að gögn um Hong Kong yrðu látin vigta inn í matið á Kína, en upp á því hafði forseti Alþjóða­bankans stungið, að hennar sögn. Hið sama var einnig dregið fram í skýrslu WilmerHale.

Engu að síður sagði Georgieva að hún tæki þær athuga­semdir sem fram hefðu komið frá fyrr­verandi samstarfs­mönnum hennar í Alþjóða­bankanum „mjög alvarlega“, en rann­sóknir málanna voru sprottnar upp úr því að einhverjum starfs­mönnum sem komu að gerð Doing Business-skýrslnanna fannst óeðlilega staðið að málum.

„Er ég lít til baka hefði ég viljað hafa meiri innsýn inn í vinnu Doing Business-teymisins, og að ég hefði vitað meira um áhyggjurnar sem sum þeirra greini­lega höfðu,“ sagði í yfir­lýsingu Georgievu, sem stjórn Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins hefur, eftir mikið skraf og ráða­gerðir undan­farnar vikur, ákveðið að dugi ásamt öðru til þess að sýna fram á að Georgievu sé áfram treystandi fyrir starfinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár