Raunvirði ráðstöfunartekna efstu tíundarinnar jókst þrefalt á við aðra í fyrra

BHM segir að kjara­gliðnun hafi átt sér stað milli launa­fólks og fjármagns­eigenda síðastliðinn áratug. Sú gliðnun jókst til muna í fyrra. Kaup­máttur fjármagns­tekna jókst um 85 prósent á tíu árum á meðan að kaup­máttur atvinnu­tekna jókst um 31 prósent.

Friðrik Jónsson er formaður BHM.
Friðrik Jónsson er for­maður BHM. Mynd: Bára Huld Beck

Hröð aukning fjármagns­tekna í fyrra gerði það að verkum að ráðstöfunar­tekjur þeirrar tíundar lands­manna sem höfðu hæstu tekjurnar, og hafa helst tekjur af fjármagni, jukust um tólf prósent á föstu verðlagi. Restin af lands­mönnum, 90 prósent, juku sínar ráðstöfunar­tekjur á raunvirði um fjögur prósent. Því jukust ráðstöfunar­tekjur, laun að frádregnum sköttum og öðrum lögbundnum gjöldum, efstu tíu prósent­anna þrefalt á við aðra þegar þær eru reiknaðar á föstu verðlagi.

Þetta kemur fram í umsögn BHM um fjár­laga­frumvarpið sem skilað var inn til fjár­laganefndar nýverið.

Þar segir ennfremur að þessi þróun sé framhald af lengri sögu og að fjármagns­tekjur hafi aukist um 120 prósent að raunvirði á síðasta áratug. „Á sama tíma jukust atvinnu­tekjur í íslenska hagkerfinu aðeins um 53 prósent. Flest bendir til að nokkur kjara­gliðnun hafi átt sér stað milli launa­fólks og fjármagns­eigenda á áratugnum 2011-2021 og hún hafi aukist til muna á árunum 2020 og 2021.“

Kaup­máttur meðaltals fjármagns­tekna hefur aukist um 85 prósent á sama tíma en um 31 prósent í tilfelli meðaltals atvinnu­tekna.

Efsta tíundin tók til sín 81 pró­sent fjár­magnstekna

Fjár­­­­­­­magns­tekjur eru þær tekjur sem ein­stak­l­ingar hafa af eignum sín­­­­um. Þær eru til að mynda vext­ir, arð­­­­ur, sölu­hagn­aður eða leig­u­­­­tekjur af lausafé og af útleigu á fast­­­­eign­­­­um. Þeir sem fá mestar fjár­­­­­magns­tekjur á Íslandi eru því sá hópur ein­stak­l­inga sem á flest hluta­bréf og flestar fast­­­eign­­­ir. Sá hópur sem hefur sankað að sér flestum eign­­­um.

Sá hópur sem jók fjár­­­magns­tekjur sínar mest í fyrra var allra tekju­hæsta tíund lands­­manna. Kjarn­inn greindi frá því í júlí að í grein­ingu á álagn­ingu opin­berra gjalda ein­stak­l­inga eftir tekju­­­­tí­und­um, sem Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahags­ráðherra, kynnti á rík­­­­is­­­­stjórn­­­­­­­ar­fundi 22. júní síð­­­­ast­lið­inn, hafi komið fram að þau tíu pró­­­­sent lands­­­­manna sem höfðu mestar fjár­­­­­­­magns­tekjur á síð­­­­asta ári hafi tekið til sín 81 pró­­­­sent allra fjár­­­­­­­magns­tekna ein­stak­l­inga á árinu 2021.

Alls höfðu ein­stak­l­ingar 181 millj­­­­arð króna í fjár­­­­­­­magns­tekjur í fyrra og því liggur fyrir að efsta tíund­in, sem telur nokkur þús­und fjöl­­­­skyld­­­­ur, var með tæp­­­­lega 147 millj­­­­arða króna í fjár­­­­­­­magns­tekjur á síð­­­­asta ári. Heild­­­­ar­fjár­­­­­­­magns­tekjur ein­stak­l­inga hækk­­­­uðu um 57 pró­­­­sent milli ára, eða alls um 65 millj­­­­arða króna. Mest hækk­­­­­aði sölu­hagn­aður hluta­bréfa sem var 69,5 millj­­­­­arðar króna á árinu 2021.

Girða þurfi fyrir tekjutilflutning

BHM segir í umsögn sinni að það þurfi að auka sanngirni í skatt­kerfinu. Frá 2019 hafi undir­liggjandi afkoma verið veikt kerfis­bundið vegna breytingar á tekju­skatti einstaklinga, lækkunar banka­skatts og trygginga­gjalds, hækkunar á frítekju­marki fjármagns­tekna og hækkunar á skatt­frelsis­marki erfðafjár­skatts. Þá hafi ekki verið vilji hjá stjórn­völdum til að taka á undir­liggjandi afkomu­halla.

Banda­lagið vill einnig girða fyrir tekju­tilflutning milli launa og fjármagns­tekna. „Þegar tekið hefur verið tillit til skatts á hagnað lögaðila og síðan skatts á fjármagns­tekjur er heildar­skatt­lagning um 38 prósent á móti 46 prósent í kerfi tekju­skatts launa. Um leið er ekki greitt tryggingar­gjald af útgreiddum arði. Þessu þarf að breyta. Hin norræna nálgun um tvíþætt skatt­kerfi með hlutleysi í skatt­lagningu fjármagns og vinnuafls ætti að vera leiðar­ljós í þessum efnum. Sérstak­lega í ljósi kjara­gliðnunar milli launa­fólks og fjármagns­eigenda.“

Í umsögninni segir að koma þurfi til móts við heimili í vanda vegna húsnæðis­kostnaðar með því að hækka stofn­framlög til almenna íbúða­kerfisins og beita þarf húsnæðis­stuðnings­kerfum markvisst til að hjálpa þeim sem búa við íþyngjandi húsnæðis­kostnað. Til að slíkur kostnaður teljist íþyngjandi fyrir fólk þarf það að nota yfir 40 prósent af ráðstöfunar­tekjum sínum í húsnæði. BHM vill líka að almenn heimild til skatt­lausrar ráðstöfunar séreignar­sparnaðar inn á húsnæðislán verði framlengd til 2025, að barna­bætur hætti að vera fátækra­styrkur og að barna­bótakerfið nái lengra upp tekju­stigann til að koma til móts við ungt og háskóla­menntað fólk með milli­tekjur.

Þá telur BHM að marka þurfi langtímasýn um fjár­mögnun heilbrigðis­kerfisins og sveitar­félaga­stigsins. „Full­fjármagna þarf sveitar­félaga­stigið og sérstak­lega eftakast á að leiðrétta skakkt verðmætamat kvenna­starfa á íslenskum vinnu­markaði.“

Vilja hækka bankaskatt á ný og endurvekja gistináttaskatt

Til að auka tekjur ríkis­sjóðs, og bæta undir­liggjandi afkomu og borga fyrir ofan­greindar aðgerðir, telur BHM meðal annars að draga ætti varanlega lækkun banka­skatts til baka og að innleiða eigi á ný gistinátta­skatt. Sér­­stakur skattur á fjár­­­mála­­fyr­ir­tæki, svo­­kall­aður banka­skatt­­ur, var lækk­­aður árið 2020 úr 0,376 í 0,145 pró­­sent á heild­­ar­skuldir þeirra banka sem skulda yfir 50 millj­­arða króna. Alls borga fimm fjár­­­mála­­fyr­ir­tæki skatt­inn en þorra hans greiða stóru bank­­arnir þrír: Lands­­bank­inn, Íslands­­­banki og Arion banki. Fyrir vikið lækk­­aði álagður banka­skattur sem rík­­is­­sjóður lagði á bank­ana um 6,1 millj­­arði króna í 4,8 millj­­arðar króna. Það er lækkun upp á 56,2 pró­­sent. Áætlað er að hann verði 5,9 millj­­arðar króna á næsta ári samkvæmt fjár­laga­frumvarpinu.

Gistinátta­skattur var fyrst tek­inn upp árið 2012 og hefur þann til­­­gang að afla tekna til að stuðla að upp­­­bygg­ingu, við­haldi og verndun fjöl­­sóttra ferða­­manna­­staða, frið­­lýstra svæða og þjóð­­garða. Skatt­­ur­inn er nú 300 krónur fyrir hverja selda ein­ingu næt­­ur­g­ist­ingar á Íslandi. Áður en kór­ón­u­veiru­far­ald­­ur­inn skall á í upp­­hafi árs 2020 hafði verið gert ráð fyrir því að skatt­­ur­inn skil­aði yfir 1,2 millj­­örðum króna í rík­­is­­sjóð það ár.

En svo kom kórónu­veiru­faraldurinn og skatt­­ur­inn var felldur niður tíma­bundið í einum af fyrstu aðgerða­­pökk­unum til þess að mæta efna­hags­­legum áhrifum veirunn­­ar. Skatt­­ur­inn átti hins vegar að taka gildi á ný þann 1. jan­úar 2022. Því var þó frestað til 2024 við fjárlaga­gerðina í fyrra.

Þá telur BHM að horfa beri til góðrar afkomu atvinnu­greina, til dæmis í sjávar­útvegi, byggingar­starfsemi og verslun til að bregðast við lækkandi tekjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár