Að blaðamenn séu með réttarstöðu sakbornings er „mjög þungt skref“

Svandís Svavars­dóttir matvæla­ráðherra segir það skipta „gríðar­lega miklu máli“ í lýðræðis­samfélagi að fjöl­miðlar séu kjarkaðir - „ekki síst þegar kemur að því að benda á spillingu“.

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

„Hvað varðar þetta að blaðamenn séu komnir með réttar­stöðu sakbornings er nátt­úrlega mjög þungt skref, svo maður taki nú ekki dýpra í árinni,“ sagði Svandís Svavars­dóttir matvæla­ráðherra í sjónvarps­þættinum Frétta­vaktinni á Hringbraut í gær er hún var spurð hvort hún tæki undir þá skoðun sem Bjarni Benediktsson fjármála­ráðherra og formaður Sjálfstæðis­flokksins, lýsti í Facebook-færslu í fyrradag.

Í færslunni fjallaði Bjarni um mál blaða­manna, m.a. tveggja sem starfa á Kjarnanum, sem fengið hafa réttar­stöðu sakbornings fyrir að skrifa fréttir um „skæruliða­deild“ Samherja. Lögreglan segir rann­sóknina tengjast meintum brotum á lögum um friðhelgi einka­lífsins.

Í færslu sinni spurði Bjarni m.a. hvort að fjölmiðla­menn væru of góðir til að mæta og svara spurningum lögreglu eins og almennir borgarar og hvernig það geti talist alvarlegt mál að lögregla óski eftir því að þeir gefi skýrslu.

Svandís var á Frétta­vaktinni spurð hvort hún væri á „sömu blaðsíðu“ og Bjarni.

Hún sagðist „engan veginn“ vera upplýst um þessa tilteknu rannsókn lögreglunnar á Norður­landi eystra sem fjórir blaðamenn hafa fengið réttar­stöðu sakbornings í. „En eins og þetta horfir við mér þá hef ég alltaf verið þeirrar skoðunar að það skipti gríðar­lega miklu máli í opnu og lýðræðis­legu samfélagi að fjöl­miðlar séu þrótt­miklir, að þeir séu kjarkaðir – ekki síst þegar kemur að því að benda á spillingu og annað sem betur mætti fara.“

Í Morgun­útvarpinu á Rás 1 í morgun ræddi Svandís kvóta­kerfið og var m.a. spurð hvort hún teldi spillingu vera innan þess í dag. Hún svaraði því til að hættan á spillingu væri fyrir hendi og minnti í því sambandi á „gríðar­lega mikilvægt hlutverk“ fjölmiðla sem væri ein hlið málsins. „Að þeir séu frjálsir og öflugir. Að þeir séu þannig að þeir þurfi ekki að búa við óttann af því að vera þaggaðir niður. Vegna þess að það er þeirra hlutverk að vera þessi brú til almennings. Svo almenningur sjái, viti og geti haft forsendur til að mynda sér skoðanir.“

Kjarninn hefur reynt að fá viðtal við Katrínu Jakobs­dóttur forsætis­ráðherra vegna málsins en án árangurs.

Um störf blaðamanna gilda önnur lög

Blaðamanna­félag Íslands og Félag frétta­manna svöruðu spurningum Bjarna í sameiginlegri yfir­lýsingu í gærkvöldi. Í henni bentu fagfélögin á að vissulega væru blaða- og frétta­menn sem einstaklingar jafnir öðrum að lögum, t.d. ef þeir eru grunaðir um ölvunar­akstur, fjársvik eða ofbeldis­brot. „Um störf þeirra gegnir hins vegar öðru máli. Um þau gilda önnur lög og reglur en um önnur störf, vegna hlutverks þeirra.“

Frelsi blaða­manna til að fjalla um mikilvæg fréttamál og veita valdhöfum aðhald sé lýðræðis­samfélaginu lífs­nauðsynleg. „Blaða­mennska getur verið, og á að vera óþægileg fyrir fólk, stofnanir og fyrirtæki í valda­stöðum, því hún afhjúpar mistök, bresti og spillingu í kerfinu. Til þess að greina frá slíkum brestum getur verið nauðsynlegt að nota gögn sem ekki hefur verið aflað með lögmætum hætti. Dómstólar hafa staðfest að notkun blaða­manna á slíkum gögnum geti samræmst hlutverki þeirra að taka við og miðla upplýsingum sem erindi eiga við almenning.“

Fagfélögin benda ennfremur á að Íslendingar hafi, eins og margar aðrar lýðræðis­þjóðir, slegið ákveðna varnagla til að tryggja blaða­mönnum athafna­frelsi til að sinna störfum sínum. Þá megi t.d. finna í lögum um fjölmiðla, þar sem blaða­mönnum er beinlínis bannað að rjúfa trúnað við heimildar­menn sína, hafi þeir óskað nafn­leyndar.

„Lagaleg sérstaða blaða- og frétta­manna í störfum sínum ætti því að vera skýr. Vandséð er hverju blaða- og frétta­mennirnir fjórir geta svarað umfram það í yfirheyrslum hjá lögreglu.“

Tveir þeirra blaða­manna sem eru með stöðu sakbornings í rannsókn lögreglunnar á Norður­landi eystra starfa á Kjarnanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár