Ráðherra fékk mótframbjóðanda sinn á fund

Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahags­ráðherra, vék stuttlega af þingfundi á þriðjudag meðan fjármála­áætlun hans var til umræðu til að funda með mótfram­bjóð­anda sínum til formanns Holl­vinafélags Mennta­skólans í Reykjavík. „Þetta kallast nefnilega að sitja beggja vegna borðsins, og er einfald­lega ekki í lagi,“ segir þingkona Pírata.

Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahags­ráðherra, vék stuttlega af þingfundi á þriðjudag meðan fjármála­áætlun hans var til umræðu til að funda með mótframbjóðanda sínum til formanns Holl­vinafélags Mennta­skólans í Reykjavík. 

„Það var ánægjulegt að hitta Benedikt og áttum við málefnalegt samtal um framtíð og tilgang Holl­vina­félagsins og kosningarnar sem ég tel að verði afar spennandi,“ skrifar Hrafnkell Hringur Helgason, sem býður sig fram gegn Benedikt, í stöðu­uppfærslu um málið á Facebook. 

Benedikt hefur sætt gagnrýni fyrir að sækjast eftir endur­kjöri sem formaður holl­vinafélags framhalds­skóla meðan hann gegnir embætti fjármála­ráðherra.

Ásta Guðrún Helga­dóttir, þingkona Pírata, fullyrðir að það sé „hagsmunaárektstur með meiru að fjármála­ráðherra fari með formanns­stöðu í samtökum sem eru beinlínis stofnuð til þess að verja hagsmuni skólans gagnvart niður­skurði ríkisins í garð framhalds­skóla­kerfisins á sama tíma og hann situr sjálfur með niður­skurðar­hnífinn í hendinni“. Segir hún að slíkt rýri trúverðug­leika Benedikts sem fjármála­ráðherra.

„Mun hann nota aðstöðu sína til þess að hygla einum framhalds­skóla umfram öðrum þar sem hann er nú kominn í stöðu til þess? Fjármála­ráðherra þarf að vera hafinn yfir allan vafa í svona málum. Þetta kallast nefnilega að sitja beggja vegna borðsins, og er einfald­lega ekki í lagi,“ skrifar Ásta Guðrún á Facebook, en fleiri núverandi og fyrr­verandi þingmenn hafa furðað sig á málinu á samfélags­miðlum.

Enn hafa ekki verið birtar upplýsingar um mótframboðið gegn Benedikt Jóhannessyni á vef Mennta­skólans í Reykjavík né á vef Holl­vinafélags skólans. Í stöðu­uppfærslu sinni á þriðjudag sagði Hringur að Benedikt hefði heitið sér „að hann myndi hlutast til um að aðalfundar­gögn yrðu leiðrétt og tilkynnt yrði um framboð“ hans. Ekki hefur ræst úr því. 

„Það kemur mér á óvart og mér finnst þetta vont. Ég hélt að venjan væri sú, þegar kosið er í stjórn og formennsku félaga, að tilkynnt væri um framkomin framboð þegar framboðs­frestur rynni út. Hér sýnist mér að ekki sé gætt jafnræðis milli framboðs míns og framboðs fjármála- og efnahags­ráðherra,“ segir Hrafnkell Hringur í samtali við Stundina. 

„Hér sýnist mér að ekki sé gætt jafnræðis milli framboðs míns og framboðs fjármála- og efnahags­ráðherra“

Samkvæmt fjármála­áætlun ríkis­stjórnarinnar, sem Benedikt kynnti í apríl, verður dregið verulega úr fjár­framlögum til framhalds­skóla­stigsins næstu fimm árin og árið 2018 mun mennta­kerfið sæta fjórfalt strangari aðhalds­kröfu en gert var ráð fyrir í fjármála­áætlun síðustu ríkis­stjórnar. Stjórn­endur framhalds­skólanna og framhalds­skóla­kennarar hafa gagnrýnt áætlunina harðlega. Þá hefur ríkis­stjórnin einnig sætt gagnrýni vegna áforma um sameiningu Fjölbrauta­skólans í Ármúla og Tækni­skóla Íslands. 

Benedikt er ekki eini ráðherra ríkis­stjórnarinnar sem lætur sig málefni Mennta­skólans í Reykjavík varða, því Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttis­mála­ráðherra, gefur einnig kost á sér til stjórnar­setu í félaginu. Aðal­fundurinn fer fram á laugar­daginn á hátíðarsal skólans. 

Uppfært kl. 19:30: Upplýsingar um aðal­fundinn á vef MR voru leið­réttar að frumkvæði skóla­stjórnenda eftir að fréttin birtist. Nokkru seinna var skjalinu á vef Holl­vina­félagsins einnig breytt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár