Donald Trump Bandaríkjaforseti tekur ekki gild ummæli James Comey, yfirmanns alríkislögreglunnar í Bandaríkjunum, um að ekkert sé til í þeim ásökunum Trump að fyrrverandi forsetinn Barack Obama hafi látið hlera síma hans.
Þetta kom fram í máli talskonu Hvíta hússins, Söru Huckabee Sanders, í viðtali í morgun. Hún sagðist ekki telja að forsetinn tæki neitun Comey gilda. Hún sagði jafnframt að forsetinn vildi að sannleikurinn kæmi í ljós, og að hann óskaði þess að það yrði gert í gegnum nefnd fulltrúadeildar þingsins.
Trump hélt því fram að Obama hefði látið hlera síma hans í Trump-turninum í New York í kosningaferlinu öllu. Hann líkti þessu við Watergate-hneykslið og sagði Obama slæman eða sjúkan mann.
Í gær greindi New York Times svo frá því að Comey hafi beðið dómsmálaráðuneytið um að hafna þessum fullyrðingum Trump, vegna þess að þær væru ekki sannar. Því sé það dómsmálaráðuneytisins að leiðrétta þetta. Það hefur ekki verið gert, heldur sagði New York Times frá því að ráðuneytið neitaði að gera slíkt.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.












































Athugasemdir