SAS aflýsir 65 flugum

Flug­félagið Scandinavian Airlines segir verkföll flug­umferðar­stjóra, skort á flug­mönnum og lélegt skipulag vera ástæður fjölmargra aflýsinga á flug­ferðum sínum.

Sumarið hjá SAS hefur ekki farið eins flugfélagið gerði ráð fyrir
Sumarið hjá SAS hefur ekki farið eins flug­fé­lagið gerði ráð fyrir Mynd: Úr safni.

Skandinavíska flug­félagið SAS aflýsti 25 flug­ferðum um helgina og hefur ákveðið að aflýsta 40 til viðbótar í vikunni, að eigin sögn vegna verkfalla, flugmanna­skorts og lélegs skipulags. Þetta kemur fyrst fram í fréttum á ýmsum skandinavískum frétta­miðlum.

Sænski ríkis­miðillinn SVT fjallaði einnig um málið, en samkvæmt henni hefur Facebook-síða flug­félagsins fyllst af reiðum athuga­semdum frá farþegum aflýstu fluganna. Þar segjast farþegarnir ekki hafa fengið nein úrræði eða útskýringar á aflýsingunum, en þær hafi allar verið tilkynntar með stuttum fyrirvara.

Í viðtali við Dagens Næringsliv segir rekstrar­stjóri SAS, Lars Sandahl Sørensen, lélegt skipulag og skort á flug­mönnum vera aðal­ástæður aflýsinganna. Einnig segir hann flug­félagið hafa verið „allt of metnaðar­fullt“ í sumar.

Tonje Sund, fjölmiðla­fulltrúi félagsins er sama sinnis: „Í stuttu máli sagt erum við á miðjum háannatíma á sama tíma sem við verðum fyrir mörgum vanda­málum. Þetta er blanda af tænkilegum vanda­málum, flugmanna­skorts í Evrópu, verkfalls flug­umferðar­stjóra og keðju­áhrif vegna aflýsinga annarra flugferða í okkar neti,“ segir Tonje í samtali við Dagens Nyheter.

Jacob Pedersen, greiningar­aðili flug­geirans hjá Sydbank segir einnig í sömu frétt að þessir þættir hafa áhrif á önnur flugfélög í Evrópu. „Þegar um ræðir aflýstar flug­ferðir, þá er það meiri spurning um hvað sé í gangi í Evrópu. Verkföll flug­umferðar­stjóra í Frakk­landi ásamt skorti á flug­mönnum í Grikk­landi og Þýska­landi hefur leitt til kvartana meðal allra flug­félaga í Evrópu.“

Kjarninn hefur áður fjallað um verkföll flug­umferðar­stjóra í Evrópu í ár, en þau eru talin hafa valdið seinkunum eða aflýsingum á flugum fyrir milljónir farþega um alla álfuna. Forstjóri Ryanair, Michael O'Leary, kallaði þá „verstu skúrkana“ í kjara­baráttu starfs­fólks í geiranum og hagsmuna­samtök flug­félaga hafa einnig sent frá sér tilkynningu um alla Evrópu þar sem lýst er yfir áhyggjum af því fjárhags­tjóni sem verk­föllin kunna að hafa í för með sér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár