Tímaáætlun um Brexit felld í breska þinginu

Boris Johnson forsætis­ráðherra segir að nú sé óvissa uppi hjá bresku þjóðinni. Hann lýsti yfir vonbrigðum, en sagði að Bretland myndi fara úr Evrópu­sambandinu, með einum eða öðrum hætti.

Boris Johnson, forsætis­ráðherra Bretlands, lýsti yfir vonbrigðum sínum eftir að breska þingið felldi tillögu hans um tíma­áætlun fyrir umræðu um samning Bretlands og Evrópu­sambandsins, vegna útgöngu Bretlands úr sambandinu.

Atkvæðin féllu þannig að 308 samþykktu tillöguna en 322 voru á móti, og sögðu nei.

Nú tekur við óvissa, sagði Johnson eftir að niður­staðan varð ljós, en sagði að Bretland væri á leið úr úr Evrópu­sambandinu með einum eða öðrum hætti, og það í samræmi við það sem lagt væri upp með, sem er 31. október, eftir níu daga.

Johnson sagði í þinginu, í aðdrag­anda atkvæða­greiðslunnar, að hann myndi kalla eftir kosingum ef ekki tækist að ljúka því sem væri lagt upp og samþykkja samninginn, fyrir 31. október. Eftir atkvæða­greiðslu var hins vegar komið anna hljóð í Johnson, og sagði hann að næsta mál á dagskrá væri að heyra í leiðtogum Evrópu­sambandsins, samkvæmt frásögn breska ríkis­útvarpsins BBC.

Jeremy Corbyn, leiðtogi breska Verkamanna­flokksins, sagði að Johnson gæti sjálfum sér um kennt, en að hann væri tilbúinn til viðræðna um eðlilega þinglega meðferð samnings um útgöngu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár