BBC var að vekja athygli á því að nú í ár eru 50 ár liðin frá frumsýningu einnar frægustu og áhrifamestu kvikmyndar í sögu Vesturlanda. Og nei, það er ekki frönsk nýbylgjumynd eða epísk rússnesk snilld, heldur ítalskur spagettí-vestri.
Það sem hét í mínu ungdæmi kabboj-mynd.
En hvílík kabboj-mynd!
Þetta er auðvitað The Good, the Bad and the Ugly sem ítalski leikstjóri Sergio Leone gerði. Þar var um að ræða þriðju myndina í þríleik sem Leone gerði með bandarískum leikara sem fram að því hafði fyrst og fremst verið þekktur sem ekkert sérstaklega tilþrifamikill sjónvarpsleikari.
Clint Eastwood.
Fyrsta myndin hét A Fistful of Dollar og var frumsýnd 1964. Ári seinna kom For a Few Dollars More. Myndirnar vöktu athygli fyrir hráslagalegt en þó vandlega úthugsað myndmál og sérkennilega spennu, þar sem tónlist, myndataka, klipping og hljóðvinnsla voru notuð á magnaðri hátt en tíðkast hafði um langt skeið í bíómyndum sem ekki töldust beinlínis „listrænar“.
Þegar svo þriðja myndin var frumsýnd 1966 hafði Leone náð slíku valdi á formi sínu að The Good, the Bad and the Ugly er ótvírætt listaverk.
Lítið hér að neðan á lokasenu myndarinnar. Byssubófarnir þrír - sem leikir eru af Clint, Lee Van Cleef og Eli Wallach - eru allir á höttunum eftir fjársjóði sem grafinn hefur verið niður í kirkjugarði. Clint veit hvar fjársjóðurinn er og skrifar staðsetninguna á stein og svo verður úr að þeir þrír keppa um hver mun standa einn eftir og hreppa fjársjóðinn.
Þetta er magnþrungin sena - af hverju er þessi mynd ekki sýnd öðru hvoru á því eina tjaldi á Íslandi sem hún verðskuldar - stóra tjaldinu í Háskólabíói?
Horfið á þetta - það þarf vonandi ekki að taka fram að tónlistina samdi Ennio Morricone, sem nú - fimmtíu árum síðar - keppir við Jóhann Jóhannsson um Óskarsverðlaunin fyrir músík!
Hér er svo ágæt grein BBC um myndina og áhrifin sem hún hefur haft.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
























































Athugasemdir