Segja Trump hafa brotið af sér

Sérfræðingar sem kallaðir voru til yfirheyrslu í Banda­ríkjaþingi í dag, sögðu Bandaríkja­forseta hafa gerst sekan um brot sem gæti kostað hann embættið.

Donald Trump Bandaríkja­forseti gerðist sekur um brot í starfi, með því að taka sérhagsmuni sína fram yfir þjóðar­hagsmuni í samskiptum við annað þjóðríki, að mati sérfræðinga sem kallaðir voru fyrir Banda­ríkjaþing í dag, til að ræða um rannsóknar­ferlið sú er í gangi sem leitt getur til embættis­missis (impeachment).

Demó­kratar segja Trump hafa gerst brotlegan, meðal annars með því að þrýsta á um rannsókn á Joe Biden, fyrr­verandi vara­forseta og nú forseta­fram­bjóðanda, en líka með því að fylgja ekki formlegum leiðum í samskiptum við önnur ríki, í þessu tilfelli Úkraínu.

Skýrsla var gefin út af rann­sóknarnefnd þingsins í gær.

Samkvæmt umfjöllun New York Times lét Michael J. Gerhardt, prófessor við University of North Carolina, hafa eftir sér í vitnis­burði, að ef þær stað­reyndir um samskipti Trump og samstarfs­manna hans við Úkraínu, væru ekki atriði sem leitt gætu til embættis­missis, þá væru í raun engin atriði sem gætu gert það. Svo augljós væru brot Trump, einkum gagnvart stjórnar­skrá landsins en einnig gagnvart formlegum reglum um hvernig ætti að haga samskiptum við önnur ríki í tilfelli forseta.

Noah Feldman, prófessor við Harvard, gekk raunar lengra en Gerhardt, og sagði að ef það væri ekki hægt að láta það leiða til embættis­missis, að taka eigin­hagsmuni fram yfir þjóðar­hagsmuni, þá væri lýðræðið í raun ekki fyrir hendi.

Repúblikanar kölluðu fyrir Jonathan Turley, prófessor við Georgetown University, sem sagðist óttast það að Demó­kratar væru að teygja lopann, og ná því fram að athafnir Trumps myndu leiða til embættis­missis, án þess að nægilegar sannanir væru á borðinu.

Samkvæmt umfjöllun New York Times, er búist við að harkalega verði deil í Banda­ríkjaþingi næstu daga, þegar mat verður lagt á það hvort Trump hafi brotið af sér, eða ekki. Mike Pence vara­forseti er sagður beita sér af hörku, og segir Repúblikana þurfa að standa saman og taka til varna, eins og það er orðað í umfjöllun New York Times.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár