Framboð Trump í sambandi við Rússa undanfarið ár

Fólk sem stóð Donald Trump Bandaríkja­forseta nærri í kosninga­baráttunni átti í miklu sambandi við rússneska leyni­þjón­ust­menn á undan­förnu ári.

Starfs­fólk framboðs Donalds J. Trump, Bandaríkja­forseta, var í sambandi við rússneska leyni­þjónustu­menn endur­tekið á undan­förnu ári í aðdrag­anda forseta­kosninganna í Banda­ríkjunum, 8. nóvember í fyrra. Þetta kemur fram í New York Times og er vitnað til fjögurra núverandi og fyrr­verandi embættis­manna í Banda­ríkjunum en fyrir liggja gögn um símtölin, tíma­setningu þeirra og úr hvaða tækjum var hringt. 

Ekki liggja hins vegar fyrir upplýsingar um hvert efni símtal­anna var og þá hefur Hvíta húsið ekki staðfest fréttirnar, en þeim hefur heldur ekki verið hafnað. Trump heldur hins vegar áfram að gagnrýna leka frá stjórn­kerfi landsins í Washington DC og nota Twitter til þess.

Michael Flynn sagði í gær af sér sem þjóðar­öryggis­ráðgjafi eftir að hann viðurkenndi að hafa greint vara­forseta Banda­ríkjanna, Mike Pence, ranglega frá efni samtala sem hann átti við sendi­herra Rússlands í Banda­ríkjunum,

Ser­­gei Kis­lyak. Hann ræddi meðal annars við hann viðskipta­þvinganir gagnvart Rússum, en því hafði hann áður neitað.

Bandaríska alríkis­lögreglan FBI hefur Flynn nú til rann­sóknar vegna tengsla hans við Rússa og þeirra samskipta sem hann átti við Rússa.

Samkvæmt New York Times og Washington Post skoða bandarískar leyni­þjónustur nú hvort framboð Trumps hafi unnið með Rússum að tölvu­árásum á Demókrata­flokkinn, þar á meðal tölvu­pósta Hillary Clinton og kosninga­stjóra hennar, með það fyrir augum að ýta undir líkur á því að Trump ynni í kosningunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár