Sjö vilja stýra Borgarleikhúsinu – listi umsækjenda verður ekki birtur

Stjórn Leik­félags Reykja­víkur ætlar ekki að birta nöfn þeirra sjö sem sóttu um stöðu Borgar­leik­hússtjóra. Eggert Benedikt Guðmundsson, formaður stjórnarinnar, segir það undir hverjum og einum umsækjenda komið hvort hann kjósi að greina frá umsókn sinni.

Starfið var auglýst 16. janúar og rann umsóknar­frestur út þann 30. þess mánaðar. Eggert telur umsóknar­frestinn hafa verið hefð­bundinn að lengt, um tvær vikur, og að ekki hafi þótt tilefni til að lengja hann.

Spurður hvort hann hafi átt von á fleiri umsóknum bendir hann á að starf leik­hússtjóra sé nokkuð sérhæft. Fyrirfram hafi hann ekki búist við einhverjum ákveðnum fjölda.

Staða Þjóð­leik­hússtjóra var auglýst á síðasta ári og sjö sóttu einnig um hana. Magnús Geir Þórðarson, fyrr­verandi Borgar­leik­hússtjóri og Útvarps­stjóri, var ráðinn úr þeim hópi.

Í auglýsingu um stöðu Borgar­leik­hússtjóra stóð:

„Leik­hússtjóri ber listræna ábyrgð á starfsemi leik­hússins og rekstrar­lega ábyrgð gagnvart stjórn félagsins. Til leik­hússtjóra eru gerðar kröfur um menntun á sviði leik­listar auk umfangs­mikillar þekkingar og reynslu af starfi leikhúsa.“

Ráðið til fjögurra ára

Ráðið er í starfið til fjögurra ára, en samkvæmt samþykktum Leik­félags Reykja­víkur er heimilt að endurráða leik­hússtjóra í önnur fjögur ár.

Kristín Eysteinsdótir er Borgar­leik­hússtjóri í dag en hefur næsta sumar verið í því starfi í átta ár.

Stefnt er að því að nýr leik­hússtjóri hefji störf við undir­búning leik­ársins 2021–2022 í samvinnu við núverandi leik­hússtjóra í ársbyrjun 2021, en taki svo formlega við stjórn Borgar­leikhússins í júlí 2021.

Eggert segist ekki ætla að tjá sig um umsækjendurna enda eigi stjórnin nú eftir að fara yfir umsóknirnar. „Stjórnin er að vinna í þessu og nú förum við í gegnum umsóknirnar og vöndum okkur við það,“ segir Eggert. „Við gerum það sem við getum til að tryggja að Leikfélag Reykja­víkur fái fyrir­myndar stjórn­anda næstu árin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár