Segja spurningum enn ósvarað um WOW og Icelandair

Afkomu­tilkynningar Icelandair og WOW air vekja upp fjölmargar spurningar, samkvæmt nýrri frétt á vef Túrista.

Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi WOW air
Skúli Mogensen, for­stjóri og eig­andi WOW air Mynd: WOW air

Vefsíða Túrista segir ýmsum spurningum ósvarað um stöðu WOW og Icelandair í ljósi neikvæðra afkomu­tilkynninga félaganna beggja í síðustu viku. Þar á meðal er spurt hvort WOW sé enn óvarið eldsneytis­verð­hækkunum og hversu háar upphæðir íslenskir bankar hafa lánað þeim.

Hugsanleg aðkoma Arion banka að rekstri flug­félaganna var til umræðu í fréttinni, en bankinn jók útlán sín til samgöngu­fyrirtækja í ferða­þjónustunni um 11 milljarða árið 2017. Ekki hafa fengist upplýsingar um hvaða fyrirtæki fengu þessi lán, en í fréttinni er spurt hvaða augum forsvars­menn Arion líta á stöðuna ef stór hluti lána­aukningarinnar fór til flug­félaganna tveggja.

Kjarninn hefur áður greint frá stöðu flug­félaganna, en margir greiningar­aðilar töldu rekstur þeirra mikil­vægan fyrir íslenskt efnahagslíf. Samanlögð hlutdeild beggja félaga af farþegum til og frá landinu er um 80%, en samkvæmt Elvari Inga Möller sérfræðingi í greiningar­deild Arion banka myndi samdráttur í framboði þeirra hafa kerfislæg áhrif.

Í fréttinni var því líka velt upp hvort fjárhags­staða WOW air sé enn tryggð út árið 2019, líkt og félagið tilkynnti um miðjan nóvember í fyrra, vegna sölu á tveimur Airbus þotum. Þar að auki var spurt hvort umrædd sala hafi bætt upp enn stærra tap WOW air en kemur fram í nýbirtri rekstrar­niðurstöðu sinni fyrir árið 2017.

Einnig var spurt um hvort staða flug­félaganna tveggja gagnvart rekstrar­kostnaði væri enn óbreytt, en Skúli Mogensen forstjóri og eigandi WOW air sagði félagið ekki varið verð­hækkunum á olíu í viðtali við Túrista í febrúar. Rúmur helmingur eldsneytis­kaupa Icelandair er hins vegar varinn til tólf mánaða og ættu þeir því að vera betur í stakk búnir til að bregðast við hærra olíuverði í fram­tíðinni, sé kostnaðar­uppbygging WOW óbreytt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár