Segir Íran ganga gegn „bandarískum hagsmunum“

Utan­ríkis­ráðherra Banda­ríkjanna var harðorður í garð Íran og segir ríkið styðja við hryðjuverka­starfsemi og ógna öryggi Banda­ríkjanna.

Rex Tillerson, utanríkisráðherra Bandaríkjanna
Rex Tiller­son, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna Mynd: EPA

Rex Tillerson, utan­ríkis­ráðherra Banda­ríkjanna og fyrr­verandi forstjóri olíu­risans Exxon Mobile, segir Íran vera ógnandi í framkomu sinni við Banda­ríkin og að stefna landsins „gangi gegn bandarískum hagsmunum“.

Þá segir Tillerson að Íran séu með miklar ögranir við Banda­ríkin, en í bréfi sínu til fulltrúa­deildar Band­ríkjaþings fer hann yfir stöðuna á samskiptum Banda­ríkjanna og Írans. Í forsetatíð Baracks Obama náðist samkomulag við stjórn­völd í Íran um að kjarnorku­afvopnun.

Ekkert bendir til þess að Íran hafi farið gegn því samkomu­lagi, en að mati Tillerson stjórn­völd beitt sér með marg­víslegum hætti gegn bandarískum hagsmunum, meðal annars með stuðningi við uppreisnar­menn í Jemen, að því er segir á vef BBC.

Tillerson segir að allt eins megi búast við því að Íran fari fram með svipuðum hætti og Norður-Kórea, og reyni að draga heiminn með sér. 

Tillerson segir jafnframt að ef það eigi að taka upp samkomu­lagið við Íran og gera breytingar, þá þurfi að horfa til þeirrar ógnar sem stafar nú af stjórn­völdum í landinu sem væru nærri ófriði á Miðausturlöndum á mörgum vígstöðum.

Sú staða væri algjör­lega óviðunandi fyrir Banda­ríkin.

Donald Trump, Bandaríkja­forseti, hefur sagt að hann sé tilbúinn til þess að gera breytingar þegar kemur að samkomu­laginu um afvopnun Írans, en ekki hefur verið útlistað nákvæmlega hvernig. Sé mið tekið af orðum Tillerson er ríkur vilji til þess hjá stjórn­völdum í Banda­ríkjunum að halda Íran í skefjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár