Seðlabankinn segir smálánafyrirtæki sniðganga lög til að græða á fjárhagsvanda ungs fólks

Meðan ríkis­stjórnin vísar til „lélegs fjármála­læsis hjá almenningi“ í tengslum við greiðslu­vanda ungs fólks beinir Seðla­bankinn sjónum að hlutverki löggjafans sem hafi ekki tekist að koma böndum á starfsemi smálána­fyrirtækja.

Þetta unga par hefði líklega gott af því að taka námskeið í fjármálalæsi.
Þetta unga par hefði lík­lega gott af því að taka nám­skeið í fjár­mála­læsi. Mynd: Shutterstock

Seðla­bankinn telur að lög frá 2013, sem var ætlað að koma böndum á starfsemi smálána­fyrirtækja, hafi ekki náð tilætluðum árangri. Fyrir­tækin beiti ýmsum brögðum til að komast framhjá lögunum og í sumum tilvikum séu lögin snið­gengin með öllu. Þetta kemur fram í riti Seðla­bankans, Fjármála­stöðugleiki, sem kom út í gær.

Sem dæmi um aðferðirnar sem beitt er nefnir Seðla­bankinn að rekstrar­aðili smálánafyrirtækja á Íslandi hafi selt rafbækur í skiptum fyrir svokallað flýtigjald eða lántökugjald, en andvirðið af sölunni hafi ekki verið innifalið í útreikningi á árlegri hlutfallstölu kostnaðar fyrir­tækisins. 

Bent er á að helsti markhópur smálána­fyrirtækja er ungt fólk sem stendur höllum fæti fjárhags­lega og hefur takmarkaðan aðgang að lánsfé í hefð­bundnum lána­stofnunum.

Hlutfall fólks á aldrinum 18 til 29 ára sem sótt hefur um greiðsluaðlögun hjá Umboðs­manni skuldara hafi hækkað umtals­vert á síðustu árum og um leið hafi hlutfall smálána­skulda af heildar­skuld­bindingum hópsins aukist.

„Árið 2017 voru 70% einstaklinga sem sóttu um greiðsluaðlögun á aldrinum 18-29 ára með smálánaskuldir. Meðalfjárhæð smálánaskulda á hverja umsókn hjá sama hópi hækkaði um rúmlega 40% á milli áranna 2016 og 2017,“ segir í riti Seðla­bankans. 

Stundin fjallar ítarlega um smálána- og raðgreiðslu­lána­starfsemi í blaðinu sem kom út í dag, einkum um umsvif Skorra Rafns Rafns­sonar í íslensku viðskipta­lífi. Skorri er stofnandi og eigandi smálána­fyrir­tækjanna 1909, Múla og Hrað­peninga en jafnframt Netgíró, eins helsta fjár­tækni­fyrirtækis Íslands, og fyrir­tækisins Aktiva sem er milli­liður í lána­viðskiptum einstaklinga og fyrir­tækja. Bent er á að Netgíró hf., sem veitt hefur íslenskum almenningi smá- og neyslulán fyrir marga milljarða króna, lýtur takmörkuðu opinberu eftirliti og er ekki eftirlits­skyldur aðili í sama skilningi og bankar eða trygginga­félög enda fyrir­tækið ekki fjár­magnað með innlánum. 

Seðla­banki Íslands hnykkir á því í ritinu sem kom út í gær að starfsemi smálána­fyrirtækja veiki greiðslu­getu einstaklinga sem sækja í slík lán. Þá kunni að reynast varhuga­vert fyrir fjármála­stöðugleika á Íslandi ef stærri fjármálafyrirtæki herða á samkeppninni við smálánafyrirtæki með því að greiða aðgengi almennings að sambærilegum skammtímalánum. Slíkt geti orðið til þess að vanskil í fjármálakerfinu aukist.

Í fjármála­áætlun ríkis­stjórnarinnar er fjárhags­vandi lágtekju­fólks á leigu­markaði og fjölgun ungs fólks sem sækir um greiðsluaðlögun hjá Umboðs­manni skuldara sett í samhengi við það sem kallað er „lélegt fjármála­læsi hjá almenningi“. Leiða má líkum að því að þarna sé vísað til þess að ungt fólk sé of ginkeypt fyrir gylli­boðum smálána­fyrirtækja.

Í umfjöllun Seðla­bankans um smálána­starfsemi og greiðslu­vanda ungs fólks er skömminni ekki skellt á almenning eða slæmt fjármála­læsi heldur sjónum beint að löggjafanum, því hvernig Alþingi og stjórn­völdum hefur mistekist að koma böndum á starfsemi smálána­fyrirtækja. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár