Launaskrið lítið miðað við spennuna á vinnumarkaði

Atvinnu­rekendur flytja inn starfs­fólk frekar en að keppa sín á milli um það vinnuafl sem fyrir er með yfirboðum í launum. Lækkun virðis­aukaskatts ætti að halda verðbólgu í skefjum að því er fram kemur í ársfjórðungs­riti Seðla­bankans sem kom út í dag.

Launa­skrið er lítið á Íslandi miðað við þá spennu sem ríkir á vinnu­markaði. Skýringin er líklega sú að atvinnu­rekendur flytja inn starfs­fólk frekar en að keppa sín á milli um það vinnuafl sem fyrir er með yfirboðum í launum.

Þetta kemur fram í Peninga­málum, ársfjórðungs­riti Seðla­bankans, sem birt var í dag. Launa­hækkanir sem kveðið er á um í kjara­samningum og tóku gildi í maí og júní hafa komið fram í launa­vísitölu Hagstofunnar í samræmi við það sem gert var ráð fyrir í maíspá bankans. Launa­vísitalan hækkaði um 3,1% milli fjórðunga og um 6,7% frá fyrra ári en kaup­máttur launa jókst um 4,8%. Auk þess eru verðbólgu­horfur áþekkar því sem spáð var í maí og talið að verðbólga verði komin í 2% á seinni hluta ársins.

Fram kemur að fyrir­huguð lækkun virðis­aukaskatts, sem áætlað er að taki gildi í byrjun ársins 2019, ætti að draga talsvert úr verðbólgu, en án áhrifa þeirrar lækkunar næði verðbólga hámarki í 3,4% um mitt ár 2019. 

Bent er á að verðbólgu­horfur eru háðar ótal óvissu­þáttum. Þannig geti áfram­haldandi lækkun krónunnar valdið meiri innfluttum verðbólgu­þrýstingi en gert er ráð fyrir í spám bankans, en janframt geti spenna á vinnu­markaði og aukning einka­neyslu heimila verið vanmetin. 

„Hækkun húsnæðis­liðar verð­bólgunnar gæti einnig verið vanmetin ef núverandi ójafnvægi á húsnæðis­markaði ágerist enn frekar. Einnig gæti svigrúm fyrir­tækja til að taka á sig frekari kostnaðar­hækkanir verið komið að þolmörkum. Eftir­spurnar­þrýstingur gæti auk þess verið vanmetinn ef slökun á aðhalds­stigi opinberra fjármála reynist enn meiri en grunn­spáin gerir ráð fyrir,“ segir í Peninga­málum.

Peninga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands ákvað í dag að halda vöxtum bankans óbreyttum. Megin­vextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 4,5%. „Útlit er fyrir að hagvöxtur í ár verði hraður eins og á síðasta ári en nokkru hægari en spáð var í maíhefti Peninga­mála. Hagvöxturinn er einkum drifinn af vexti ferða­þjónustu og einka­neyslu auk þess sem útlit er fyrir slökun í aðhaldi opinberra fjármála í ár,“ segir í yfir­lýsingu peninga­stefnu­nefndar sem birt var í morgun. Bent er á að spenna í þjóðar­búskapnum kalli á peningalegt aðhald. Aðhalds­stigið ráðist af framvindu efnahags­mála og annarri hagstjórn.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár