Elliði kemur Páleyju til varnar en ríkislögreglustjóri segir þagnarkröfu hennar „stílbrot“

Páley Borg­þórs­dóttir, lög­reglu­stjór­inn í Vest­manna­eyjum, fær stuðn­ing frá Elliða Vign­is­syni bæj­ar­stjóra vegna kröf­unnar um að ekki sé greint frá fjölda kyn­ferð­is­brota á Þjóð­há­tíð. Í gær sendi hún út frétta­til­kynn­ingu til fjöl­miðla fyrir hönd stuðn­ings­manna Elliða.

Elliði Vign­is­son, bæj­ar­stjóri í Vest­manna­eyjum, kemur Páleyju Borg­þórs­dóttur lög­reglu­stjóra til varnar vegna ákvörð­unar hennar um að greina ekki opin­ber­lega frá til­kynntum kyn­ferð­is­brotum á Þjóð­há­tíð í Vest­manna­eyjum og hvetja við­bragðs­að­ila til að þegja um slík mál. Í gær sendi Páley út frétta­til­kynn­ingu fyrir hönd hóps sem skorar á Elliða Vign­is­son að bjóða sig fram til Alþingis.

 „Ég veit ekki betur en til þess að þessir verk­ferlar séu þeir sömu og lög­regla notar um allt land, alla daga árs­ins,“ segir Elliði í við­tali við Vísi.is í dag. Þessi full­yrð­ing stenst ekki skoðun ef marka má það sem fram kemur í máli Haraldar Johann­es­sen, rík­is­lög­reglu­stjóra, en hann segir í við­tali við frétta­stofu RÚV að verk­lag lög­reglu­stjór­ans í Vest­manna­eyjum sé „nokkuð stíl­brot á það hvernig málin eru með­höndluð ann­ars staðar á land­inu“ en best væri ef sami háttur væri alls staðar hafður á.

Páley Borgþórsdóttir
Páley Borg­þórs­dóttir erlög­reglu­stjóri í Vest­manna­eyjum

Lög­reglan í Vest­manna­eyjum hefur sætt harðri gagn­rýni, meðal ann­ars af fag­að­ilum og þolendum kyn­ferð­is­brota, vegna þagn­ar­kröf­unnar á Þjóð­há­tíð. Lög­reglan í Vest­manna­eyjum fylgir sömu stefnu í ár og gert var í fyrra, en yfir­lýst mark­mið er að vernda rann­sókn­ar­hags­muni og hags­muni brota­þola. Frétta­blaðið greindi frá því í morgun að Neyð­ar­mót­taka Lands­spít­al­ans ætli að upp­lýsa fjöl­miðla um fjölda kyn­ferð­is­brota­mála á Þjóð­há­tíð þótt lög­reglu­stjór­inn í Vest­manna­eyjum hafi óskað eftir því að það verði ekki gert. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þjóðhátíð

InnlentÞjóðhátíð

Þjóð­há­tíð­ar­nefnd ákveðin að halda hátíð­ina síðar í sumar

Þjóð­há­tíð í vest­manna­eyjum verður haldin í sumar þrátt fyrir hertar sótt­varn­ar­að­gerðir. Þjóð­há­tíð­ar­nefnd ætlar að bíða í nokkrar vikur og stefnir á að halda hátíð­ina síðar í sumar. Nú er orðið ljóst að Þjóð­há­tíðin fer ekki fram um næstu helgi, Versl­un­ar­manna­helg­ina eins og alla­jafna. Hertar sótt­varn­ar­að­gerðir koma í veg fyrir að svona fjöl­menn hátíð geti farið fram. Þjóð­há­tíð­ar­nefnd sendi frá sér...
InnlentÞjóðhátíð

Svona verður veðrið á Þjóð­há­tíð

Það stytt­ist í Þjóð­há­tíð í Vest­manna­eyjum sem sett verður 30. júlí í Herj­ólfs­dal. Eftir frekar þungt sumar „sunn­an­lands“ eru margir að spá í hvernig veðrið verði á Þjóð­há­tíð, sem dregur árlega til sín þús­undir skemmt­ana­þyrstra gesta. Ef rýnt er í lang­tíma­veð­ur­spár virð­ist dæmið líta vel út; Þurrt að kalla verður á fimmtu­deg­inum 29. júlí – en þá fer fram hið...

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár