Andstæðingar „elítunnar í Evrópu“ í vandræðum

Stuðningur við efasemd­aradd­irum Evrópu­sambandið í Evrópu virðist vera á niðurleið, samkvæmt frétta­skýringu Wall Street Journal.

Angela Merkel, kanslari Þýskalands
Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands Mynd: EPA

Margir gerðu ráð fyrir að árið 2017 yrði ár andstæðinga Evrópu­sambandsins og „elítunar í Evrópu“ en eftir töp í kosningum, harða andstöðu og efasemdir innan eigin raða, þá standa þeir veikir eftir.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í ítarlegri frétta­skýringu í Wall Street Journal um stjórnmála­ástandið í Evrópu um þessa mundir. Svo virðist sem andstæðingar Evrópu­sambandsins séu nú í sárum og sundraðir, ekki síst eftir slæma niður­stöðu kosninga í Bretlandi, þar sem Theresu May, forsætis­ráðherra Bretlands, tókst ekki að styrkja stöðu sína í kosningum til að fá sterkara umboð frá almenningi inn í viðræður um útgöngu Breta úr Evrópu­sambandinu.

Þá er einnig sérstak­lega rætt um að eftir sigur Macrons í frönsku kosningunum, þá standi hægri vængurinn í stjórnmála­landslaginu, þar sem andstæðingar Evrópu­sambandsins hafa náð saman á undan­förnum árum, veikur og sundraður eftir.

Jafnvel þó margt bendi til þess að Macron forseti muni þurfa lengri tíma til að fóta sig í stjórn­málum, eftir ævintýra­legan sigur fyrr á árinu, þá er fylgi við efasemdaraddir um Evrópu­sambandið og Evrópu­samrunann heldur að minnka, að því er fram kemur grein Wall Street Journal.

Á undan­förnum vikum hefur Angela Merkel, kanslari Þýska­lands, mælst með meira fylgi heldur en raunin hefur verið á undan­förnum árum, og bendir margt til þess að hún fari haldi velli sem þjóðar­leiðtogi Þýska­lands í kosningunum 24. september.

Merkel hefur verið ötull talsmaður Evrópu­sambandsins og meiri samvinnu Evrópu­ríkja, og ef fram heldur sem horfir þá verður niður­staðan í kosningum mikill sigur fyrir hana. Kannanir hafa að undan­förnu sýnt að um 64 prósent kjósenda í Þýska­landi telja farsæ­lasta að Merkel verði áfram kanslari. Framundan er þó spennandi mánuður í þýskum stjórn­málum, þar sem staðan getur breyst á loka­sprettinum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár