Bjarni segist hafa meint annað en hann sagði og sakar aðra um „eftirsannleik“

Gögn Hag­stof­unnar, sem fjár­mála­ráð­herra vísar til, styðja ekki þá full­yrð­ingu sem hann setti fram í Krydd­síld­inni. Full­yrð­ing hans um fjölda fólks á lág­marks­taxta stenst ekki skoðun.

Hélt fram rangri fullyrðingu
Hélt fram rangri full­yrð­ingu Full­yrð­ing Bjarna Bene­dikts­sonar um að aðeins 1 pró­sent full­vinn­andi fólks fái greitt sam­kvæmt lág­marks­taxta er röng. Mynd: Pressphotos

Full­yrð­ing Bjarna Bene­dikts­sonar í Krydd­síld­inni um að ein­ungis 1 pró­sent full­vinn­andi fólks á vinnu­mark­aði starfi á 300 þús­und króna „lág­marks­taxta“ er röng. 

Skýr­ingar hans á því hvað hann meinti ganga í ber­högg við orða­lagið sem hann not­aði á gaml­árs­dag. 

Þá styðja gögn Hag­stof­unnar, sem Bjarni vísar til á Facebook, ekki þá full­yrð­ingu sem hann setti fram í þætt­inum. 

Þrátt fyrir að hafa verið stað­inn að því að fara með rangt mál sakar Bjarni aðra um „eft­ir­sann­leik“ í Facebook-færslu um málið og kallar eftir þjóð­mála­um­ræðu sem byggi á hlut­lægum stað­reyndum. 

Orðrétt sagði Bjarni í Krydd­síld­inni á gaml­árs­dag: „Hvað er hátt hlut­fall full­vinn­andi sem starfar á lægsta taxta sem er 300 þús­und? Sam­kvæmt töl­um Hag­stof­unn­ar er það 1% af vinnu­mark­að­inum sem starfar á 300 þús­und króna lág­marks­taxt­an­um.“ 

Vil­hjálmur Birg­is­sonverka­lýðs­for­ingi á Akranesi

Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness, svar­aði full­yrð­ingu Bjarna sam­dæg­urs og vís­aði til gagna frá Hag­stof­unni um að 50 pró­sent verka­fólks væru með grunn­laun um og undir 300 þús­und krónum. 

Stefán Ólafssonpró­fessor við Háskóla Íslands

Stefán Ólafsson, félags­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands og sér­fræð­ingur hjá Eflingu stétt­ar­fé­lagi, skrif­aði svo grein í Kjarnann í gær og benti á að sam­kvæmt launa­rann­sóknum Hag­stof­unnar hefðu tæp­lega 40 pró­sent full­vinn­andi verka­fólks verið með umsamin lág­marks­laun eða minna í grunn­laun árið 2017 og alls um 20 pró­sent á almenna vinnu­mark­aðnum.

Bjarni Bene­dikts­son brást við skrifum Vil­hjálms og Stefáns á Facebook. Þar útskýrði ráð­herra hvað hann hefði meint með ummælum sínum í Krydd­síld­inni. „Með þessu vís­aði ég til þess að tölur Hag­stof­unnar sem birt­ust 13. sept­em­ber 2018 um laun á árinu 2017 hefðu sýnt að innan við 1% full­vinn­andi Íslend­inga væri með 300.000 kr. eða minna í heild­ar­laun á mán­uði,“ skrif­aði Bjarni. 

Raunin er þó sú að í Krydd­síld­inni tók Bjarni aldrei fram að hann væri að vísa til heild­ar­launa, þ.e. til allra launa ein­stak­linga, reglu­legra launa auk ýmissa óreglu­legra greiðslna, t.d. greiðslna vegna yfir­vinnu og vakta­á­lags, orlofs- og des­em­ber­upp­bótar, ein­greiðslna, ákvæð­is­greiðslna og upp­gjörs vegna upp­mæl­inga.

Í þætt­inum tal­aði Bjarni ein­vörð­ungu um hlut­fall full­vinn­andi fólks starf­andi á lág­marks­taxta og full­yrti að „sam­kvæmt töl­um Hag­stof­unn­ar“ væri það „1% af vinnu­mark­að­inum sem starfar á 300.000 króna lág­marks­taxt­an­um“. Í þeim upp­lýs­ingum Hag­stof­unnar sem Bjarni Bene­dikts­son vísar til er hins vegar ekki gefið upp hve margir full­vinn­andi launa­menn voru á lægsta dag­vinnu­taxta árið 2017. Þannig styðja gögnin ekki þá full­yrð­ingu Bjarna að það sé „1% af vinnu­mark­að­inum sem starfar á 300 þús­und króna lág­marks­taxt­an­um“. 

Í Facebook-færsl­unni sakar Bjarni Bene­dikts­son tals­menn verka­lýðs­fé­lag­anna um „eft­ir­sann­leik“ (e. post-truth) og kallar eftir þjóð­mála­um­ræðu sem byggi á stað­reyndum.

„Í upp­hafi nýs árs er hægt að láta sig dreyma um að einn helsti grund­völlur heil­brigðra skoð­ana­skipta í land­inu fái áfram að standa óhagg­aður – að við látum vera að deila um stað­reyndir - það er nóg annað til að takast á um,“ skrifar Bjarni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár