Spotify samdi við Warner Music og verður nú skráð á markað

Tónlistar­streymis­fyrirtækið hefur endur­samið við þrjú stærstu útgáfu­fyrirtæki í heimi.

Spotify nýtur sífellt meiri vinsælda um allan heim.
Spotify nýtur sífellt meiri vin­sælda um allan heim. Mynd: EPA

Sænska tónlistar­streymis­fyrirtækið Spotify hefur endur­samið um dreifingar­rétt á tónlist við Warner Music Group og verður fyrir­tækið nú sett á hlutabréfa­markað.

Áður hafði Spotify gert samninga við Sony Music og Universial Music Group. Því er Spotify áfram með samninga við þrjú stærstu útgáfu­fyrirtæki tónlistar í heiminum.

Warner Music tilkynnti um samninginn á samfélags­miðlum fyrir­tækisins í dag. Í tilkynningunni segir Ole Obermann, yfirmaður staf­rænnar deildar Warner Music Group, að þetta sé tímamóta­samningur. „Með Spotify höfum við fundið nýstárlegar leiðir til þess að auka virði tónlistar á ný, skapa auknar tekjur fyrir listamenn og skemmta áhangendum hljómlistar­manna um allan heim.“

Stefan Bloom, efnis­stjóri Spotify, segir að samstarfið muni stuðla að auknum vexti hins nýja tónlistar­hagkerfis. „Þar geta margar milljónir tónlistar­manna tengst áhangendum sínum með engum fyrirvara og öfugt.“

Í samningum Spotify við stóru útgáfu­fyrirtækin er tónlistar­mönnum gert kleift að gefa út tónlist sína á vefnum til áskrifenda hjá Spotify. Þeir sem hlusta á Spotify án þess að greiða fyrir þjónustuna munu þurfa að bíða eftir nýjustu útgáfunum áður en þær verða gerðar frjálsar.

Stefnt er að því að Spotify verði sett á hlutabréfa­markað í vetur. Fyrir­tækið hefur sagst miða við lok árs 2017 eða byrjun árs 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár