Barnaverndarstofa túlkar upplýsingalögin allt öðruvísi heldur en ráðuneytið og velferðarnefnd

Barna­vernd­ar­stofa afhendir Stund­inni og RÚV hund­ruð blað­síðna þar sem m.a. er fjallað um ein­stök barna­vernd­ar­mál. Þing­mönnum er aðeins hleypt í gögn er varða ein­stak­lings­mál í „leyni­her­bergi“.

Mynd tengist frétt ekki beint.
Mynd teng­ist frétt ekki beint. Mynd: Shutterstock

Barna­vernd­ar­stofa hefur afhent RÚV og Stund­inni hund­ruð blað­síðna af gögnum, meðal ann­ars um ein­stök barna­vernd­ar­mál og umgengn­is­deilur for­eldra, með nöfnum og ýmsum per­sónu­grein­an­legum atriðum afmáðum.

Í gagna­pakk­anum er til að mynda að finna fund­ar­gerð af fundi Barna­vernd­ar­stofu um mál tveggja stúlkna sem hefur verið til umfjöll­unar í fjöl­miðlum. Mörg mál­anna sem fjallað er um tengj­ast hins vegar ekki kvört­unum barna­vernd­ar­nefnda á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins. 

Af þessu má ráða að Barna­vernd­ar­stofa túlki upp­lýs­inga­lögin með miklu frjáls­legri hætti heldur en vel­ferð­ar­ráðu­neytið sem hefur neitað að afhenda gögn um rann­sókn á kvört­unum barna­vernd­ar­nefnda undan Barna­vernd­ar­stofu til ráðu­neyt­is­ins, meðal ann­ars á þeim grund­velli að kvart­an­irnar varði „til­tekin ein­stak­lings­mál á sviði barna­verndar“.

Telur ráðu­neytið að í minn­is­blöðum sem tekin voru saman komi fram „umfjöllun um við­kvæm gögn sem óheim­ilt er að veita almenn­ingi aðgang að á grund­velli 9. gr. upp­lýs­inga­laga“. Samkvæmt umræddu laga­á­kvæði er óheim­ilt er að veita almenn­ingi aðgang að gögnum um einka- eða fjár­hags­mál­efni ein­stak­linga sem sann­gjarnt er og eðli­legt að leynt fari. Ráðu­neytið hefur vísað til grein­ar­gerðar sem fylgdi frum­varpi til upp­lýs­inga­laga á sínum tíma, en þar kom fram að taka yrði mið af því við afhend­ingu gagna hvort upp­lýs­ingar væru „sam­kvæmt almennum sjón­ar­miðum svo við­kvæmar að þær eigi ekk­ert erindi við allan þorra manna“. Að mati vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins eru gögnin svo við­kvæm að þing­menn mega ein­ungis sjá þau í lok­aðri skjala­geymslu á Alþingi og er óheim­ilt að tjá sig um efni þeirra. Þá var ákveðið að nefnd­ar­fundur vel­ferð­ar­nefndar með Braga Guð­brands­syni yrði lok­aður í ljósi þess að þar kynni umræðan að hafa snertifleti við við­kvæm barna­vernd­ar­mál.

Gögnin sem Barna­vernd­ar­stofa hefur afhent Stund­inni og RÚV voru tekin saman vegna kvart­ana barna­vernd­ar­nefnda á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til vel­ferðar-ráðu­neyt­is­ins. Þar er að finna við­brögð við ásök­unum nefnd­anna og málsvörn Braga Guð­brands­sonar vegna ávirð­inga sem bornar hafa veirð á hann, en jafn­framt ýmis athuga­semda­bréf til barna­vernd­ar­nefndar Hafn­ar­fjarðar sem varða önnur mál en fjallað hefur verið um í fjöl­miðlum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hug­sjóna­flokkur verður að borg­ara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síð­ustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trú­verð­ug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokk­ur­inn tal­aði áður skýrt á móti. Samhliða hefur rót­tækt fólk úr gras­rót­inni yfir­gefið Vinstri græn, kjós­enda­hóp­ur­inn breyst, hratt gengið á póli­tíska inn­eign Katrínar Jak­obs­dóttur og fylgi flokks­ins hrunið. Þetta er fórn­ar­kostn­aður þess að kom­ast að völdum með áður yfir­lýstum póli­tískum and­stæð­ingum sínum.

10 mín. lestur

ÚttektRíkisstjórn Katrínar

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár