Peter Thiel veðjar á Bitcoin

Tækni­fjár­festirinn umdeildi er sagður hafa fjárfest fyrir háar fjárhæðir í Bitcoin að undan­förnu. Hann veðjar á áfram­haldandi hækkandi verðþróun Bitcoin og að hún festi sig í sessi.

Fjár­festirinn Peter Thiel, sem er meðal þekktustu tækni­fjárfesta heimsins, hefur fjárfest fyrir mörg hundruð milljónir Bandaríkja­dala í Bitcoin að undan­förnu. Frá þessi greinir Wall Street Journal, en Thiel veðjar á að Bitcoin muni festa sig í sessi og hækka í verði eftir því sem tíminn líður.

Fjár­festingarnar hafa farið fram í gegnum sjóði fyrir­tækisins Founders Fund sem Thiel stýrir, og voru meðal stærstu fjárfestingana um mitt síðasta ár. Gríðarleg hækkun á virði Bitcoin var meðal stærstu tíðinda ársins 2017 á mörkuðum, en virðið stendur nú í rúmlega 15 þúsund Bandaríkja­dölum, eða um 1,6 milljónum króna.

Hækkunin í dag var um 10 prósent en sveiflurnar á virði Bitcoin hafa verið miklar og hraðar. Fjallað hefur verið ítarlega um Bitcoin á vef Kjarnans að undan­förnu.

Frá því í júní í fyrra, þegar Thiel er sagður hafa stóraukið fjár­festingar sínar, var virði Bitcoin um 1.200 Bandaríkja­dalir, en það fór svo stig­vaxandi eftir því sem leið á árið.

Thiel er einn þeirra sem hagnaðist verulega á fjár­festingum í Facebook og var meðal fyrstu fjárfesta til að leggja félaginu til umtals­vert fjármagn. Hann er einnig meðal hluthafa Tesla og hefur stutt Elon Musk í hans frumkvöðla­verkefnum.

Hann er fimmtugur að aldri og áhrifa­mikill í tækni­fjár­festingum í Sílikondalnum. Þá er hann umdeildur, ekki síst vegna stuðnings við Donald Trump Bandaríkja­forseta, en hann hélt meðal annars erindi á fundi Repúblikana í aðdrag­anda kosningana í nóvember 2016 og hvatti til þess að Bandaríkja­menn breyttu stjórn­málunum.

Heildar­eignir Thiel voru metnar á 2,5 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 270 milljörðum króna, í byrjun síðasta ár, samkvæmt lista Forbes.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár