Vilja draga úr skaðlegum áhrifum þess að sami lífeyrissjóður eigi í samkeppnisaðilum

Samkeppnis­eftirlitið hefur áhyggjur af því að sami lífeyris­sjóður eigi stóran eignar­hlut í fleiri en einum keppinauti á sama markaði og kallar eftir umræðu um þá stöðu. Sömu sjóðir eiga oft í öllum skráðum félögum sem bjóða sambærilega eða sömu þjónustu.

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins.
Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Mynd: Hringbraut

Samkeppnis­eftirlitið kallar eftir því að tekin verði „dýpri umræða“ um það hvort hægt sé að gera breytingar umgjörð löggjafans og annarra stjórn­valda um starfsemi lífeyris­sjóða, sem til þess væru fallnar „að draga úr mögulegum skaðlegum áhrifum þess á samkeppni að sami lífeyris­sjóður eigi veiga­mikinn eignar­hlut í fleiri en einum keppinauti á sama markaði.“

Þetta kemur fram í umsögn eftirlitsins um drög að frumvarpi Bjarna Benedikts­sonar, fjármála- og efnahags­ráðherra, um að hækka hlutfall þeirra eigna sem lífeyris­sjóðir mega eiga erlendis. Líkt og Kjarninn hefur greint frá stendur til að hækka hlut­fallið úr 50 í 65 prósent yfir langt tímabili – frá byrjun árs 2024 til loka árs 2038 – en djúpstæð óánægja er innan lífeyris­sjóða­kerfisins yfir því hversu hæg skref á að taka. Lands­samtök lífeyris­sjóða hafa varað við ruðnings­áhrifum og bólu­myndun ef stærri skref verði ekki tekin í því að hleypa sjóðunum út til fjár­festingar.

Eiga stóra hluti í fyrirtækjum sem keppa við hvort annað

Gagnrýni Samkeppnis­eftirlitsins er hins vegar að öðrum toga. Það styður rýmkun á heimildum sjóðanna til fjár­festinga erlendis en fjallar að uppistöðu um þær áhyggjur sínar að umgjörð löggjafans og annarra stjórn­valda um starfsemi lífeyris­sjóða, sem til þess væru fallnar að draga úr mögulegum skaðlegum áhrifum þess á samkeppni að sami lífeyris­sjóður eigi veiga­mikinn eignar­hlut í fleiri en einum keppinauti á sama markaði. Þannig er staðan í dag, en sjóðir eiga stóra hlut í bönkum, smásölu­fyrirtækjum, trygginga­félögum, fjarskipta­fyrirtækjum og fasteigna­félögum, svo fátt eitt sé nefnt, sem eiga að vera í samkeppni sín á milli.

Eftir­litið segist sakna þess að nánar sé fjallað um samkeppnisleg áhrif af víðtæku eignar­haldi lífeyris­sjóða á atvinnu­fyrirtækjum og segir tímabært að taka dýpri umræðu um hvernig hægt sé að draga úr mögulegum skaðlegum áhrifum þeirrar stöðu. „Slíkar aðgerðir geta t.d. falist í því að gera breytingar á hámarks­fjár­festingu lífeyris­sjóða í hverju einstöku fyrirtæki, gera breytingar á stjórn­skipulagi lífeyris­sjóða, útfæra lög eða reglu­gerðir er lotið gætu að hvata­kerfi stjórn­enda í slíkum hluta­félögum eða rýmka heimildir til fjár­festingar erlendis. Í fyrir­liggjandi frumvarps­drögum er einungis fjallað um síðasta atriðið, en athygli vekur að í fram­komnum umsögnum við frumvarps­drögin eru sett fram sjónarmið um að hækka þau mörk enn frekar og flýta breytingunni.“

Óttast bólumyndun og ruðningsáhrif

Kjarninn greindi frá því í gær að í umsögn Lands­samtaka lífeyris­sjóða um frumvarps­drögin segi að æskilegt sé að byrja að hækka heimild lífeyris­sjóða til að fara út til að fjárfesta strax um næstu áramót og hækka hana um tvö til þrjú prósentu­stig á ári þangað til að 65 prósent markinu yrði náð. Ef farið yrði að ítrustu kröfum sjóðanna myndi það takmark nást í árslok 2027 að óbreyttu.

Fulltrúar þeirra sjóða sem eru næst hámarks­hlutfalli eigna erlendis telja einfald­lega að boðuð skref séu allt of varfærin og ná yfir of langt tímabil. Afar brýnt sé að fara hraðar í breytingar „með hagsmuni sjóð­félaga að leiðar­ljósi“.

Í umsögn samtak­anna sagði að ef „hömlur á fjár­festingar í erlendum gjald­miðlum gera það að verkum að stórir sjóðir neyðast til að fjárfesta í innlendum eignum umfram það sem þeir telja æskilegt út frá hagsmunum sinna sjóð­félaga verður að sama skapi talsverð hætta á ruðnings­áhrifum og bólu­myndun á innlendum eigna­markaði sem getur leitt til þess að innlend eignasöfn lífeyris­sjóða verði að einhverju leyti ósjálfbær til framtíðar“.

Samtök atvinnu­lífsins eru á meðal annarra sem skiluðu umsögn um frumvarps­drögin og styðja þar nálgun fjármála- og efnahags­ráðherra um að hækka þakið á erlendum fjár­festingum lífeyris­sjóða varfærnis­lega og yfir langt tímabil.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár