Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, hefur lagt fram skriflega fyrirspurn til Lilju D. Alfreðsdóttur, viðskipta- og menningarmálaráðherra, þar sem hún vill að ráðherrann svari því hvaða stjórnmálamenn hafi komið fram sem viðmælendur í þáttum RÚV frá síðustu alþingiskosningum. Inga vill fá að vita um alla slíka sem hafa komið hafa fram í útvarps- og sjónvarpsþáttum, hvaða stjórnmálaflokki þeir tilheyra, í hvaða þáttum þeir hafa verið, hve lengi og hversu oft.
RÚV sjálfstætt opinbert hlutafélag í eigu íslenska ríkisins. Þótt ráðherra fari með eignarhlut ríkisins í fyrirtækinu er níu manna stjórn yfir því sem kosin er á aðalfundi eftir tilnefningu Alþingis. Ráðuneyti Lilju, sem fer með fjölmiðlamál í ríkisstjórninni, gerir hins vegar þjónustusamning við RÚV um fjölmiðlun í almannaþágu.
Í lögum um RÚV segir meðal annars að fyrirtækið skuli í starfsháttum sínum vera til fyrirmyndar um gæði og fagleg vinnubrögð og ábyrgjast af sanngirni og hlutlægni sé gætt í frásögn, túlkun og dagskrárgerð. Þá skuli upplýsinga leitað frá báðum eða öllum aðilum og sjónarmið þeirra kynnt sem jafnast. Þar segir einnig að RÚV skuli vera „óháð stjórnmálalegum, hugmyndafræðilegum og efnahagslegum hagsmunum í efnismeðferð og ritstjórnarákvörðunum“ og að þar skuli stunduð vönduð og gagnrýnin fréttamennska sem rýnir meðal annars störf yfirvalda, félaga og fyrirtækja sem hafa áhrif á hag almennings. Allar dagskrárákvarðanir eiga að vera teknar á faglegum forsendum.
Vinstri græn oftast í þáttum RÚV
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Inga spyr um hvaða stjórnmálamenn hafi komið fram á RÚV. Snemma árs í fyrra lagði hún fram sambærilega fyrirspurn um hverjir hefðu komið þar fram frá árinu 2018.
Í svari ráðherra þá kom fram að alls hefðu 28 prósent allra þingmanna sem verið höfðu viðmælendur í sjónvarps- og útvarpsþáttum RÚV frá árinu 2018 verið frá Vinstri grænum. Það er töluvert hærra hlutfall en fylgi flokksins í alþingiskosningunum 2017, en til samanburðar var hlutdeild Sjálfstæðismanna og Miðflokksmanna í þáttum RÚV töluvert minna en fylgi þeirra í síðustu kosningum.
Samkvæmt svari ráðherra höfðu alþingismenn mætt sem álitsgjafar í sjónvarps- og útvarpsþáttum RÚV alls 1.198 sinnum á umræddu tímabili. Árið 2020 voru þær 402 talsins, árið 2019 voru þær 366 og árið 2018 voru þær 400. Í janúar 2021 voru svo 30 heimsóknir skráðar.
Af öllum flokkum sem áttu fulltrúa á þingi komu þingmenn úr flokki Ingu Sæland sjaldnast fram í þáttum RÚV á þessu tímabili. Þar hafði Inga sjálf komið fram níu sinnum í sjónvarpsþáttum RÚV og átta sinnum í útvarpsþáttum síðan árið 2018. Hinn þáverandi þingmaður flokksins, Guðmundur Ingi Kristinsson, hafði svo aðeins komið fram einu sinni í sjónvarpsþætti og einu sinni í útvarpsþætti á tímabilinu. Samtals voru því heimsóknir þingmanna flokksins 19. Flokkur fólksins fékk 8,8 prósent atkvæða í kosningunum 2021 og er nú með sex þingmenn.
Í svarinu sem ráðherra veitti í fyrra kom fram að hlutdeild heimsókna á meðal þingmanna Sjálfstæðisflokksins hefði verið mun minni en fylgi hans í kosningunum 2017, en 18 prósent stjórnmálamanna sem birtust í þáttum RÚV voru frá flokknum, sem fékk 25,2 prósent atkvæða í þeim kosningum. Einnig hallaði þessi samanburður á Miðflokkinn, þar sem þingmenn hans voru á bak við sex prósent heimsókna í sjónvarps- og útvarpsþáttum stöðvarinnar, þrátt fyrir að flokkurinn hefði fengið tæplega ellefu prósent atkvæða árið 2017.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.














































Athugasemdir