Þingmenn VG oftast í þáttum RÚV

Þingmenn VG hafa oft­ast komið fram af öllum þing­mönnum í sjón­varps- og útvarps­þáttum RÚV frá árinu 2018. Ef miðað er við fylgi flokka í síð­ustu kosn­ingum hefur sá flokkur fengið mest vægi, á meðan mest hefur hallað á Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Mið­flokk­inn.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur komið 102 sinnum fram í sjónvarpsþáttum RÚV frá árinu 2018.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur komið 102 sinnum fram í sjón­varps­þáttum RÚV frá árinu 2018. Mynd: Bára Huld Beck

Alls hafa 28 pró­sent allra þing­manna sem hafa verið við­mæl­endur í sjón­varps- og útvarps­þáttum RÚV frá árinu 2018 verið frá VG. Það er tölu­vert hærra hlut­fall en fylgi flokks­ins í alþing­is­kosn­ing­unum 2017, en til sam­an­burðar var hlut­deild Sjálf­stæð­is­manna og Mið­flokks­manna í þáttum RÚV tölu­vert minna en fylgi þeirra í síð­ustu kosn­ingum.

Meira en þúsund heimsóknir

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, lagði fram fyr­ir­spurn til mennta­mála­ráð­herra nöfn stjórn­mála­mann­anna sem hafa komið fram sem við­mæl­endur í útvarps- og sjón­varps­þáttum Rík­is­út­varps­ins í byrjun febr­ú­ar­mán­aðar. Þar spurði hún einnig hversu oft hver stjórn­mála­maður hafi komið fram og hversu langan tíma hann hafi fengið.

Í gær birti mennta­mála­ráð­herra svo svar við þeirri fyr­ir­spurn, þar sem heim­sóknir allra þing­manna í þáttum RÚV á árunum 2018, 2019 og 2020 voru taldar, auk heim­sókna í jan­úar á þessu ári. Ráðherra taldi einnig saman fjölda frétta hjá RÚV þar sem nafn alþing­is­manna kemur fram á þessu tíma­bili. Taln­ingin end­ur­speglar þó ekki fjölda eig­in­legra heim­sókna, þar sem hún telur einnig með end­ur­sýn­ingar og end­ur­flutn­ing á gömlu efni.

Samkvæmt svari ráð­herra hafa alþing­is­menn mætt sem álits­gjafar í sjón­varps- og útvarps­þáttum RÚV alls 1.198 sinnum á þessu tíma­bili. Í fyrra voru þær 402 tals­ins, en árið 2019 voru þær 366 og árið 2018 voru þær 400. Í jan­úar voru svo 30 heim­sóknir skráðar.

VG efst, Flokkur fólksins neðst

Af öllum alþing­is­flokk­unum komu þing­menn úr flokki Ingu Sæland sjaldn­ast fram í þáttum RÚV. Þar hefur Inga sjálf komið fram níu sinnum í sjón­varps­þáttum stöðv­ar­innar og átta sinnum í útvarps­þáttum síðan árið 2018. Hinn þing­maður flokks­ins, Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, hefur svo aðeins komið fram einu sinni í sjón­varps­þætti og einu sinni í útvarps­þætti á tíma­bil­inu. Samtals voru því heim­sóknir þing­manna flokks­ins 19.

Þingmenn VG hafa hins vegar komið oft­ast fyrir í sjón­varps- og útvarps­þáttum RÚV. Frá árs­byrjun 2018 og út síð­ast­lið­inn jan­ú­ar­mánuð hafa heim­sóknir þing­manna flokks­ins hjá Rík­is­út­varp­inu sam­tals verið 331, eða um það bil 17 sinnum fleiri en hjá Flokki fólks­ins. Á meðal þeirra hefur Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra verið lang­vin­sælust, en hún kom 57 sinnum fyrir í útvarps­þáttum og 102 sinnum fyrir í sjón­varps­þáttum á tíma­bil­inu.

Hallar á hægriflokka

Þar sem stærri stjórn­mála­flokkar hafa fleiri full­trúa á alþingi er hlut­deild þeirra í útvarps- og sjón­varps­þáttum RÚV alla jafna meiri en minni flokka. Til að mynda eru þrír stærstu stjórn­mála­flokk­arnir á alþingi - Sjálf­stæð­is­flokkur, Sam­fylk­ingin og VG - einnig þeir þrír flokkar sem hafa haft þing­menn sína oft­ast í þáttum Rík­is­út­varps­ins. Sam­an­burð­inn má sjá á mynd hér að neðan.

Ef fylgi flokka í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum er borið saman við hlut­deild þeirra í þáttum RÚV sést hins vegar að sumir flokkar hafa fengið meiri umfjöllun en aðrir, þrátt fyrir að tekið sé til­lit til stærðar þeirra. Mesta mis­ræmið milli fylgi og fjölda heim­sókna er hjá VG, þar sem hlut­fall heim­sókna þing­manna flokks­ins er mun hærra en fylgi þess í síð­ustu kosn­ingum. Einnig er hlut­deild heim­sókna þing­manna Sam­fylk­ing­ar­innar hærri en fylgi hennar, líkt og myndin að ofan sýnir.

Aftur á móti hefur hlut­deild heim­sókna á meðal þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins verið mun minni en fylgi hans, en 18 pró­sent stjórn­mála­manna sem birt­ust í þáttum RÚV voru frá flokknum, sem fékk 25 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ingum. Einnig hallar þessi sam­an­burður á Mið­flokk­inn, þar sem þing­menn hans voru á bak við 6 pró­sent heim­sókna í sjón­varps- og útvarps­þáttum stöðv­ar­innar, þrátt fyrir að flokk­ur­inn hafi fengið tæp­lega 11 pró­sent atkvæða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár