Norsk stjórnvöld reisa girðingu til að halda flóttafólki frá landinu

Skiptar skoðanir eru á framkvæmdum norskra stjórn­valda, sem reisa nú girðingu meðfram landa­mærunum við Rússland í tilraun til þess að hefta för flótta­fólks inn í landið.

Flóttafólk
Flótta­fólk hjólar yfir landa­mærin milli Noregs og Rúss­lands

Norsk stjórn­völd standa að byggingu stál­girðingar meðfram landa­mærunum við Rússland vegna fjölda flótta­fólks sem kom til landsins í fyrra.

Nýja girðingin, sem verður rúmlega 200 metra löng og 3,3 metrar á hæð, mun verða í kringum Skorskog landamæra­stöðina, samkvæmt heimildum Reuters frétta­veitunnar. Áætlað er að byggingu hennar verði lokið áður en vetrar­frostin á svæðinu hefjast.

Dómsmála­ráðherra landsins, Ove Vanebo, varði framkvæmdina í samtali við Reuters og sagði hana vera „ábyrgt úrræði,“ þrátt fyrir að um 23.000 manns, að mestu frá Sýrlandi, hafi sótt um hæli í Noregi í fyrra. Fjöldi þeirra sem sækja um hæli í landinu hefur hins vegar fækkað um 95% á fyrsta þriðjungi ársins 2016.

„Ég sé enga þörf fyrir þessa girðingu,“ sagði Rune Rafaelsen, bæjar­stjóri Soer-Varanger, sem liggur nálægt landa­mærunum, í samtali við Reuters. „Það eru allt of margar girðingar að rísa í Evrópu í dag,“ bætti hann við, og benti á dæmi um gaddavírs­girðingar í þjóðum eins og Ungverja­landi.

Linn Landro, sem tilheyri hópnum Refugees Welcome [e. Flótta­fólk Velkomið] sagði um framkvæmdina: „Það er skylda okkar að vera land sem fólk getur flúið til. Girðingin sendir mjög neikvæð skilaboð, einnig til Rússlands, af því hún segir: „Við treystum ykkur ekki.““

Flótta­fólkið notar reiðhjól til þess að komast yfir landa­mærin, vegna þess að landamæra­eftirlit Rússlands leyfir fólki ekki að fara yfir þau fótgangandi og það er ólöglegt að fara akandi inn í Noreg ef ökumaðurinn er ekki með réttu pappírana.

Mikið hefur verið rætt um vegg sem forseta­fram­bjóðandi repúblikana, Donald Trump, segist ætla að reisa meðfram landa­mærum Banda­ríkjanna og Mexíkó. Norsk stjórn­völd hafa áður vakið athygli fyrir aðferðir sínar sem miða að því að koma í veg fyrir að flótta­menn komist til landsins.  Þau halda meðal annars úti facebook síðu þar sem hryllings­sögur eru sagðar af móttöku flótta­manna í landinu, og hversu erfitt sé að fá hæli þar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár