„Vildum óska þess að pabbi væri með okkur í dag“

Hafþór Sævarsson segir að barátta föður síns hafi loksins borið ávöxt: „Faðir okkar barðist alla ævi fyrir sann­leikanum í þessum málum og að sakleysi hans yrði viðurkennt.“

„Við vildum óska þess að pabbi væri með okkur í dag en svo er því miður ekki,“ skrifar Hafþór Sævarsson, sonur Sævars Marínós Ciesielski, vegna niður­stöðu endur­upptöku­nefndar sem kynnt var í dag.

Nefndin hefur fallist á endur­upptöku á dómi Hæstaréttar yfir þeim Kristjáni Viðari Júlíussyni, Sævari Ciesielski og Tryggva Rúnari Leifssyni sem voru sakfelldir fyrir að hafa orðið Guðmundi Einars­syni að bana árið 1974. Þá er fallist á endur­upptöku dómsins yfir Sævari, Kristjáni og Guðjóni Skarp­héðinsyni vegna hvarfs Geirfinns Einars­sonar og endur­upptöku á dóminum yfir Alberti Klahn Skafta­syni, sem var sakfelldur fyrir hlutdeild í málinu.

Sævar Ciesielski barðist alla ævi fyrir því að málin yrðu tekin upp að nýju. Eftir að hann lést árið 2011 hafa börnin hans haldið barátt­unni áfram, meðal annars Hafþór Sævarsson sem birtir mynd af föður sínum á Facebook í dag og skrifar:

Pabbi, loksins er komið að því! <3

Við systkinin getum loksins fagnað því að mannorð þitt verður hreinsað.

Faðir okkar barðist alla ævi fyrir sann­leikanum í þessum málum og að sakleysi hans yrði viðurkennt. Manns­hvörf tveggja manna voru misnotuð af rann­sóknar­aðilum.

Við vildum óska þess að pabbi væri með okkur í dag en svo er því miður ekki.

Allt frá því að við munum eftir okkur hafa þessi mál litað tilveru okkar. Það er ekki hægt að útskýra með orðum þá upplifun að hafa fæðst inn í þetta ranglæti.

Endur­upptöku­nefnd fellst á að Guðmundar- og Geirfinnsmál, sem aldrei voru dómtæk mál, verða tekin upp að nýju. Þá fellst nefndin ekki á að taka upp rangar sakar­giftir á þessum tíma­punkti; þær falla um sig sjálfar með sýknudómi.

Kærar þakkir, þið öll sem hafið stutt okkur allan þennan tíma.

Til hamingju pabbi, barátta þín og seigla hefur loksins skilað sér í endur­upptöku. 

Réttlætið sigrar að lokum.

 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Guðmundar- og Geirfinnsmál

FréttirGuðmundar- og Geirfinnsmál

Hefur unnið að sáttum fyrir hönd forsætis­ráðuneytisins en hafnar því að lögregla hafi beitt harðræði

Guðjóni Skarp­héðinssyni, einum hinna sýknuðu í Guðmundar- og Geirfinns­málum, er sjálfum kennt um rangan dóm Hæstaréttar yfir sér í greinar­gerð setts ríkis­lögmanns, Andra Árnasonar, sem hafnar því að rann­sakendur hafi brotið með refsiverðum hætti gegn Guðjóni. Andri hafði samband við aðstand­endur í vor „til að skoða tiltekna sátta­möguleika fyrir ráðuneytið“.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár