Michael Flynn neitaði að afhenda þingnefnd gögn

Hinn brott­rekni þjóðar­öryggis­ráðgjafi Banda­ríkjanna, Michael Flynn, stendur í ströngu vegna rann­sóknar á tengslum framboðs Donalds Trump við Rússa.

Michael Flynn, sem starfaði sem þjóðaröryggisráðgjafni Bandaríkja­forseta í 20 daga áður en hann var látinn hætta, neita að afhenda þingnefnd Banda­ríkjaþings gögn, sem nefndin vill fá afhent í tengslum við rannsókn á tengslum framboðs Donalds Trumps við Rússa.

Frá þessu greindi New York Times í dag, en í umfjöllun Bloomberg um málið segir að Flynn ætli sér að láta reyna á rétt sinn og að hann neiti með öllu að sýna á spilin þegar kemur að þessum gögnum.

Þá segir enn fremur að lögfræðingar, sem Bloomberg vitnar til, telji að líkur á því að málsókn gegn Flynn séu þó nokkrar. Þá yrði jafnvel byggt á því að brot hans varði við landráð, og einnig að hann hafi sagt þinginu og stjórn­völdum ósatt um tengsl sín við Rússa.

Ástæðan fyrir því að hann var þvingaður til að hætta, var sú að hann hafði rætt um viðskipta­þvinganir Banda­ríkjanna gagnvart Rússum við sendi­herra Rússa.

Alríkis­lögreglan FBI er að rannsókn tengsl Flynn við Rússa, og einnig fleiri aðila sem tengdust framboði Trumps, þar á meðal Jeff Sessions, dómsmála­ráðherra, en vitað er að hann átti fundi með Sergey Kislyak, sendi­herra Rússa í Washington DC., í tvígang á síðasta ári.

Sessions sagði ósatt um þessi tengsl sín, eiðsvarinn frammi fyrir þingnefnd, en gögn frá FBI og leyni­þjónustunni CIA staðfestu að hann hefði átt fundi með Kislyak.

Tengsl Rússa við framboð Trumps, og einstaka menn innan þess, eru nú til rann­sóknar hjá Banda­ríkjaþingi, CIA og FBI.

Á blaðamanna­fundi í dag sagðist Donald Trump, Bandaríkja­forseti, ekki hafa talað fyrir því á fundi með James Comey, fyrr­verandi yfirmanni FBI, að FBI myndi hættað rannsaka Flynn. Samkvæmt minnis­blöðum Comey þá lét Trump þessi orð falla á fundi þeirra. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár