Málmtollar Trumps valda titringi hjá Repúblikönum

Paul Ryan er sagður reyna að tala um fyrir Trump, og reyna að fá hann til þess að bakka með hugmyndir sínar um háa tolla á innflutning á stáli og áli.

Donald Trump Bandaríkja­forseti hefur þegar tilkynnt um 25 prósent innflutnings­tolla á stál og 10 prósent á ál. Í baklandi Repúblikana er megn óánægja með þessar hugmyndir og fer Paul Ryan þar fremstur í flokki, samkvæmt umfjöllun New York Times.

Markmið þessara hækkana er að efla stál- og áliðnað í Banda­ríkjunum, og reyna þannig að skapa störf í Banda­ríkjunum sem annars færu annað.

Banda­ríkin flytja inn um fjórfalt meira af stáli og áli heldur en þau flytja út, og því gætu tollarnir komið illa við ýmsan iðnað í Banda­ríkjunum, í það minnst í fyrstu. Áhyggju­raddir innan Repúblikana enduróma það sem komið hefur frá bíla­iðnaðinum og hergagna­fram­leiðendum, en þeir óttast að tollarnir hækki kostnað og dragi úr samkeppnis­hæfni.

Þá snúa áhyggjurnar líka af því, að breytingarnar muni haf víðtæk efnahagsleg áhrif, ekki aðeins í Banda­ríkjunum, heldur víða um heiminn. Inngrip eins og þessi, geti raskað jafn­væginu í efnahags­málum og skapað mikil vandamál.

Samkvæmt umfjöllun New York Times ætlar Trump ekki að bakka með þessar risavöxnu aðgerðir, og hefur boðað frekari tolla­vernd fyrir bandarískan bílaiðnað, og vill hækka tolla á innflutning bíla frá Evrópu og Asíu. Nákvæmar útlistanir á þeim hugmyndum hafa þó ekki komið fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár