Viðskipti aftur stöðvuð í kauphöllinni í New York

Bandarískir hlutabréfa­markaðir hrundu við opnun viðskipta í dag og í annað sinn í vikunni stöðvuðust viðskipti vegna mikils verðfalls. Ástæðan nú er ferða­bannið sem Bandaríkja­forseti tilkynnti um í nótt.

Markaðurinn í Bandaríkjunum hefur snúist úr því að vera lengsti „bull-markaður“ í sögu landsins yfir í að vera alvarlegasti „bear-markaður“ sem sést hefur frá því í fjármálakreppunni.
Mark­að­ur­inn í Banda­ríkj­unum hefur snú­ist úr því að vera lengsti „bull-mark­aður“ í sögu lands­ins yfir í að vera alvar­leg­asti „bear-mark­aður“ sem sést hefur frá því í fjár­málakrepp­unni. Mynd: Úr safni.

Í annað sinn í vikunni voru viðskipti með hlutabréf í kaup­höllinni í New York stöðvuð vegna þess að S&P vísitalan, sem mælir gengi 500 verð­mætustu félögin sem skráð eru á bandarískan hlutabréfa­markað, hafði lækkað um sjö prósent. Við slíka lækkun stöðvast viðskipti sjálf­krafa í 15 mínútur og er um að ræða varnagla sem settir hafa verið inn í viðskipta­kerfin til að reyna að draga úr líkum á hruni á markaði.

Stöðvunin dugði ekki til fyrst um sinn og vísitalan hélt áfram að lækka eftir að viðskipti hófust á ný. Hún hefur þó aðeins tekið við sér nú og er niður um 6,55 prósent þegar þetta er skrifað. Falli hluta­bréfin um meira en 13 prósent innan dags munu viðskipti stöðvast aftur. Það þarf kannski ekki að koma á óvart að þau félög sem hafa fallið mest í Banda­ríkjunum í dag eru flugfélög.

Á mánudag gerðist það líka að við­skipti voru stöðvuð tíma­bundið í kaup­höll­inni í New York eftir að S&P vísi­talan hafði lækkað um sjö pró­sent á fyrstu fimm mín­út­unum eftir opnun mark­aða. Hluta­bréfa­mark­aðir í Evr­ópu og Asíu féllu líka skarpt. Ástæður þessa voru þá fyrst og síð­ast áfram­hald­andi efna­hags­leg áhrif af útbreiðslu kór­ónu­veirunnar og hratt lækk­andi heims­mark­aðs­verðs á olíu. Verð­fallið á mörk­uðum í Banda­ríkj­unum var það mesta síðan í desember 2008.

Ástæðan fyrir falli á virði hluta­bréfa í dag má rekja beint til þess að í nótt tilkynnti Don­ald Trump, for­­seti Banda­­ríkj­anna, frá því að sett hefði verið ferðabann sem á að standa yfir í 30 daga frá og með kom­andi föst­u­degi. Það mun virka þannig að öllum íbúum landa sem til­­heyra Schengen-­­svæð­inu, þar á meðal Ísland og þorri Evr­­ópu, verður meinað að koma til Banda­­ríkj­anna á tíma­bil­inu. Banda­rískir rík­­is­­borg­­arar og aðrir sem eru með fasta búsetu í Banda­­ríkj­unum munu fá að ferð­­ast ef þeir vilja en sam­­kvæmt frétta­til­kynn­ingu sem birt var í nótt á vef heima­varn­­ar­ráðu­­neyt­is­ins mun þeim banda­rísku far­þegum sem dvalið hafa á Schengen-­­svæð­inu hleypt inn í landið í gegnum valda flug­­velli þar sem sér­­stakar ráð­staf­­anir verða gerðar til að skima fyrir smiti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár