„Bardaginn er núna um mannshugann“

Bókmenntir skrifaðar af gervi­greind teljast ekki til listar því í þær vantar tilfinningar höfundarins að mati Bergsveins Birgis­sonar rithöfundar. Hann líkir listinni við skák, sem tölvur eru orðnar miklu betri í en mannfólk, en samt heldur fólk áfram að tefla.

Bergsveinn Birgisson
Berg­sveinn Birg­is­son Rit­höf­und­ur­inn ótt­ast frekar um mót­tak­anda list­ar­innar en lista­mann­inn sjálfan, nú á tímum gervi­greindar. Mynd: Víkingur

Íslendingar hafa lengi kallað sig bókmennta­þjóð og landið sjálft sögueyju. Talað er um að sagna­arfurinn frá fyrstu land­nemunum hafi borist til nýrra kynslóða sem skálda sínar bókmenntir í samræmi við íslenska arfleifð.

Með tilkomu spuna­greindar (e. generative artificial intelligence) á borð við ChatGPT nýtist öll bókmennta­sagan við að spinna nýtt efni. Þannig notaði til dæmis Bandaríkja­maðurinn Tim Boucher spuna­greind strax árið 2023 til að „skrifa“ hundruð mynd­skreyttra bóka, selja þær og græða á þeim. Hann sagði Newsweek að hann hefði fengið þúsundir dollara fyrir bækurnar sem tók hann jafnvel aðeins þrjá klukku­tíma hverja að skrifa. Spuna­greindin væri þannig gott tól til að koma ímyndunar­afli sínu í farveg.

En eru verk búin til af spuna­greind list? Þessi umræða hefur undan­farin ár átt sér stað innan allra list­greina, allt frá tónlist og myndlist til kvikmynda og bókmennta.

Berg­sveinn Birgisson, höfundur ljóðabóka og skáldsagna, meðal annars Svars við bréfi Helgu, …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Gervigreindin tekur yfir

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár