Trump boðar miklar skattalækkanir

Skattar verða lækkaðir á fyrirtæki og einstaklinga í Banda­ríkjunum, nái áform Donalds Trumps fram að ganga.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Donald J. Trump, Bandaríkja­forseti, boðar miklar skatta­lækkanir, einkum fyrir fyrirtæki, en áætlun þess efnis verður kynnt á næstu dögum, samkvæmt yfir­lýsingum hans í viðtali við fjölmiðla í gær.

Í viðtali við AP-frétta­stofuna segir Trump að nýja skatta­löggjöfin feli í sér „mestu skatta­lækkanir sögunnar.“ Á meðal þess sem horft er til er að gera fyrir­tækjum kleift að forðast skatt­greiðslur með frekari fjár­festingum og tilfærslum í bókhaldi. Þá segir Trump að skattar verði einnig lækkaðir á einstaklinga:

Nú þegar hefur fjár­laga­frumvarpið verið kynnt, en í því felst mikill niður­skurður hjá flestum undir­stofnunum ríkisins, en á móti verða framlög til hersins aukin um 10 prósent, sem nemur um 54 milljörðum Bandaríkja­dala, eða sem nemur um sex þúsund milljörðum króna. Heilt yfir gera fjárlögin ekki ráð fyrir miklum niður­skurði.

Boðaðar breytingar á skatta­löggjöfinni eru sagðar víðtækar, og á eflaust eftir að ganga á ýmsu í Banda­ríkjaþingi þegar rætt verður um breytingarnar.

Steve Mnuchin, fjármála­ráðherra, segist vona að ný stefna í skatta­málum verði komin að fullu til framkvæmda á seinni hluta þessa árs eða í byrjun næsta árs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár