Trump við Merkel: Við vorum bæði hleruð

Angela Merkel er í opinberri heimsókn í Banda­ríkjunum.

Angela Merkel og Donald Trump eftir fyrsta fund þeirra í Hvíta húsinu.
Angela Merkel og Donald Trump eftir fyrsta fund þeirra í Hvíta hús­inu. Mynd: EPA

Donald J. Trump, Bandaríkja­forseti, sagði við Angelu Merkel, kanslara Þýska­lands, í opinberri heimsókn hennar til Banda­ríkjanna, að þau hefðu bæði verið hleruð í tíð Baracks Obama, forvera Trumps í starfi forseta. „Við eigum í það minnsta eitthvað sameiginlegt,“ sagði Trump við Merkel, að því er fram kemur í umfjöllun breska ríkis­útvarpsins BBC.

Trump hefur fullyrt að Obama hafi látið hlera hann í Trump Tower turninum í New York, en því hafa allar leyni­þjónustu­stofnanir Banda­ríkjanna hafnað, sem og sérstök þingnefnd Banda­ríkjaþings, skipuð Repúblikönum og Demó­krötum. Trump lætur ekki segjast og heldur áfram að fullyrða að Obama hafi látið hlera sig.

Í heim­sókninni var fyrirfram skipulagt að ræða um samstarf á vettvangi NATO, viðskipta­tengsl landanna tveggja og aðgerðir til sporna gegni ógnandi framkomu Rússa í Austur-Evrópu.

Merkel er einnig sögð hafa viljað ræða um alþjóða­samvinnu á víðum grunnu og meðal annars vaxandi spennu á Kóreuskga, þar sem ólíkinda­tólið Kim Jong Un, leiðtogi Norður-Kóreu, hefur ógnað Japönum, Suður-Kóreu og Banda­ríkjunum, með eldflauga­skotum sem hafa lent í japanskri lögsögu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár